Leita | Ítarleit | Titlar
Bók

Íslenzk þjóðlög


Höfundur:
Bjarni Þorsteinsson 1861-1938

Útgefandi:
S.L. Møller, 1906

í Gegni Textaleit

998 blaðsíður




Skrár
PDF (126,6 KB)
HQ PDF (322,5 KB)
JPG (277,7 KB)
TXT (1,2 KB)

Deila







þú þarft að vera með Adobe Reader Plugin til að skoða þessa síðu.

get Adobe Reader


Snemma morguns á Þorláksmessu sendir erkibiskup tvo klerka
til kirkju þeirrar, er Guðmundur biskup syngur í, til þess
að grennslast eptir, hvað hann hafist að. Skömmu síðar
koma þeir aptur til erkibiskups, og spyr hann þá þess, hvort
GuÖmnndur hafi hlýðnazt banni sínu Klerkar svara, að um
það skuli erkibiskup sjálfur dæma, og bæta svo við: „Tíða-
gjörð er þar harðla sæmilig, með þeirri skipan, sem hæfir
hátið allra heilagra." Erkibiskup svarar: „Vel má svá vera,
þvi at eigi er hægt at lýta svá gert; mun þat herra Guð-
niundr ætla, at Porlákr skuli fá sinn hlut úskerðan i tiða-
gjörð þessi; er þat eigi hvers manns, at íinna þvilíkan útveg."
Er það ætlun mín, að þá þegar hafi þessi tíðasöngur,
sem bjer er nóteraður, verið til orðinn úti á Islandi, og að
það hafi einmitt verið þessi söngur, sem Guðmundur biskup
söng þenna Porláksmessumorgun í kirkju sinni í Niðarósi.
Hjer kemur þá fyrir almennings sjónir með venjulegum
nótum tiðasöngur þessi, sem i skinnbókinni stendur með
'ujiig fornum Grallaranótum. Hinn latinski texti er mjög
bundinn i handritinu, en er hjer leystur úr böndum. Pað
sem hjer stendur milli sviga, er ekki í handritinu, en þvi
er bætt hjer við eptir sennilegri ágizkun.