Leita | Ítarleit | Titlar
Bók

Íslenzk þjóðlög


Höfundur:
Bjarni Þorsteinsson 1861-1938

Útgefandi:
S.L. Møller, 1906

í Gegni Textaleit

998 blaðsíður




Skrár
PDF (156,4 KB)
HQ PDF (382,6 KB)
JPG (332,4 KB)
TXT (1,8 KB)

Deila







þú þarft að vera með Adobe Reader Plugin til að skoða þessa síðu.

get Adobe Reader


„Ymislegur samtíningur 1852."
Petta stendur á titilblaðinu á skrifu&u kveiú í 12mo,
sem jeg fyrir nokkrum árum fjekk að gjöf frá Guðvarði
Guðvarðarsyni á Á í Unudal, talsvert söngfróðum manni, og
sagði hann að kverið væri skrifað af síra Páli Jónssyni,
siðast i Viðvík, og hefði hann átt það, en Guðvarður fengið
það hjá honum. Kverið er i gyltu skinnbandi, 118 bls. að
stærð og ágætlega skrifað. Fyrst er ofurlítið ágrip af söng-
fræði, 21 bls. og er það bæði stutt og ekki alls kostar
áreiðanlegt, að likindum lagt út úr einhverri gamalli danskri
söngfræði. Par næst koma yfir 60 lög með bókstafanótum,
fiest sálmalög, og flest með texta, og sum með athugasemdum
og tilbreytingum. Pá eru síðast tvær blaðsíður, svo sem
viðbót við söngfræðina.
Mörg lögin eru bjer eins og í bók Ara Sæmundsens og
var hún þó ekki komin út þá; mörg eru líka nokkuð frá-
brugðin; hjer eru einnig lög, þó fá sjeu, sem jeg hef hvergi
annarsstaðar sjeð eða heyrt. Skal jeg nú telja upp þau lög
i kveri þessu, sem að minni ætlan eru innlend; er flestra
þeirra getið annarsstaðar, eða þau nóteruð sem tilbreytingar
við sömu lögin á öðrum stöðum, og er þess getið við hvert
þeirra.
1. Ó, Jesú, elsku hreinn. Nóterað sem ein af breyt-
ingunum á laginu: Kunningjar Kristí þá.
2. Dagur svo langur aldrei er. Nóterað hjer.
3. Einn herra eg bezt ætti. Nóterað sem tilbreyting
af því lagi í Hymnodia.
4. Hvar mundi vera hjartað mitt. Nóterað sem
tilbreyting af laginu i Hymnodia.
5. í Babýlon við vötnin ströng. Nóterað hjer.
6. Sólin rann, ljós leið. Nóterað bjer.
7. Langar mig í lifs höll. Nóterað hjer.
8. Pjer, drottinn, þakka jeg. Nóterað meðal lag-
anna úr Hymnodia; er alveg eins þar, og einnig i
Höfuðgreinabókinni (1772).
26