Leita | Ítarleit | Titlar
Bók

Íslenzk þjóðlög


Höfundur:
Bjarni Þorsteinsson 1861-1938

Útgefandi:
S.L. Møller, 1906

í Gegni Textaleit

998 blaðsíður




Skrár
PDF (156,1 KB)
HQ PDF (370,9 KB)
JPG (305,4 KB)
TXT (1,0 KB)

Deila







þú þarft að vera með Adobe Reader Plugin til að skoða þessa síðu.

get Adobe Reader


471
Stephensens, og segir Mackenzie að bæöi Stephensen og
einnig íleiri, hafi fullvissað þá í'erðamennina um, að lögin
sjeu mjög gömul og algjörlega innlend. Þetta segist Mack-
enzie ekki hafa neina ástæðu til að efast um; hann segist
sjá það af ýmsum lögum, einkum gömlum islenzkum sálma-
lögum, sem hann hafi skrifað upp úr bókum Stephensens,
að musík hafi verið þekkt og dýrkuð og kennd sem sjerstök
list á íslandi (it appears, that music was known as a science.
Og siðar segir hann: music is said to have been formerly
taught in the island.)
Lögin hef jeg svo nóterað upp eins og þau standa í
ferðabókinni, textalaus og með þremur röddum. Ekki veit
jeg eða get ennþá sjeð, hvaða textar hafa átt við þau,
nema fyrsta lagið, sem lítur út fyrir að vera lagið: Upp á
fjallið Jesús vendi, talsvert svipað þvi, sem það er
nóterað hjer í safninu.
Fyrirsögnin fyrir lögunum hjá Mackenzie er: Speci-
mens of the ancient Sacred Music of Iceland.
Nr. 1 í Mackenzies ferðabók.
tr /^