Leita | Ítarleit | Titlar
Bók

Íslenzk þjóðlög


Höfundur:
Bjarni Þorsteinsson 1861-1938

Útgefandi:
S.L. Møller, 1906

í Gegni Textaleit

998 blaðsíður




Skrár
PDF (165,4 KB)
HQ PDF (397,7 KB)
JPG (340,9 KB)
TXT (1,9 KB)

Deila







þú þarft að vera með Adobe Reader Plugin til að skoða þessa síðu.

get Adobe Reader


Iimgaiigui-.
Einnig var opt minnzt á jólabækur og páskabækur, seni
að líkindum hafa haft inni að halda söng og lesmál aö eins'
fyrir þessar hátíðir.
Ekki er mjer kunnugt um að fyr sje getið söngbóka á
íslenzku en í Sigurðar registri. Par er meðal bóka dóm-
kirkjunnar á Hólum 1525 nefnd „messubók íslenzk, er heldur
grallara de tempore med kana".1) Er hjer sjálfsagt átt við
kirkjusöngsbók með íslenzkum textum; en að hve miklu leyti
hjer sje að ræða um innlend lög, er ekki unnt að ákveða.
Sömu kirkju tilheyrir 1550 „stór psaltari íslenzkur", og 1569
„íslenzkur psaltari", sem eflaust þýðir „íslenzk kirkjusöngs-
bók", þar eð Davíðs saltari var þá ekki til á íslenzku, svo
menn viti.2)
Um dansa er víða getið í fornritum vorum (t. d. í Stur-
lungu og víðar), og hafa eflaust verið sungin lög við þá, lík-
lega nieira eða minna svipuð vikivakalögum þeim, er siðar
urðu hjer svo algeng. Pað er alkunn saga um Pórð Andrjes-
son, að kvöldið áður en Gissur jarl ljet drepa hann, haíi hann,
á hestbaki, látið hest sinn dansa með sig, og sjálfur hafi hann
kveðið við raust danskvæði það, sem þetta var i:
„Minar eru sorgirnar þungar sem blý".
Má telja það víst, að dansinn til forna hafi ekkí staðið í
sambandi við hljóðfæraslátt, heldur hafi að eins verið dansað
eptir vísnalögum, sem dansmennirnir sungu, ýmist einn eða
fleiri. Arngrímur lærði segir svo: „Kyrrðardansa kalla
jeg þá dansa, sem fóru fram eptir settu söngsamræmi, þar
sem kvæði eða söngvísur voru við hafðar til að dansa eptir.
Par var einn forsöngvari, og tveir eða fleiri tóku undir með
honum, en hinir dönsuðu á meðan. En hringdans eða
vikivaki var það, þegar karlar og konur gengu fram á
víxl og greindust svo aptur að eða deildust. Hvorlveggja
tegundin virðist bera keim af grískum dansi, neina að hjer
stóðu einstakir menn i röð og sungu söngvísur með af-
») AM 269 4to.
2) j. Pork. Digtnixigeu bls. 27,