Leita | Ítarleit | Titlar
Bók

Íslenzk þjóðlög


Höfundur:
Bjarni Þorsteinsson 1861-1938

Útgefandi:
S.L. Møller, 1906

í Gegni Textaleit

998 blaðsíður




Skrár
PDF (158,7 KB)
HQ PDF (398,7 KB)
JPG (353,1 KB)
TXT (2,0 KB)

Deila







þú þarft að vera með Adobe Reader Plugin til að skoða þessa síðu.

get Adobe Reader


eins niörg eða niargbrotin og bragarhættir kvæðanna, heldur
haíi menn getað vikið lögunum lítiö eitt við og haft sama
lagið við" íleiri líka bragarhætti; en nokkuð mörg hljóta
lögin að hafa verið; á það benda þær leifar, sem vjer enn
þá höfuin af vikivakalögununi, svo og hið margbreytilega
efni vikivakakvæðanna; því mjög óliklegt er að fjörúgar
visur og í'uJlar af glensi haíi verið sungnar með sama lag-
inu og alvarlegar vísur eða jafnvel andleg kvæði.1)
Hinn katólski kirkjusöngur eða latínusöngurinn leið að
mestu undir lok við siðaskiptin, eins og eðlilegt var, en i
hans stað kom hinn lúterski kirkjusöngur, sem stund-
um er kallaður Grallarasöngur. Fyrst framan af var
latínusöngurinn þó ekki útilokaður með öllu; er svo að sjá,
af formálanum fyrir 2.—5. útgáfu Grallarans, að Guðbrandur
biskup haíi ekki viljað að latinusöngurinn fjelli alveg riiður;
og i formálanum fyrir 6. útgáfunni segir 3?órður biskup J?or-
láksson, að þá sje látinusöngurinn mjög óvíða við hafður á
landinu, að undanteknum dómkirkjunum báðum, og þeirra
vegna segist hann ekki sleppa honum alveg, svo nokkur
munur verði á messugjörðinni á stórliátíðum og á öðrum
helgum dögum. I síðari útgáfum Grallarans er þessum söng
með öllu sleppt.
í hinum fyrstu lútersku sálmabókum, sem út voru
gefnar, voru engar nótur. Ólafur Hjaltason, hinn fyrsti lút-
erski biskup á Norourlandi (f. 1484), var af Jóni biskupi Ara-
syni settur frá prestsembætti 1549, af þvi að Olafur hafði
látið syngja lútei'ska sáhna í Laufáskirkju. Litlu siðar varð
Olal'ur biskup eptir Jón. Hann var hinn fyrsti biskup, sem
tók sjer fyrir hendur að leggja útlenda sálma út á íslenzku,
en ekki voru útleggingar hans góðar. Árið 1552 gaí' hann
einnig út nokkra lúteröka sálma á islen/ku, en hvergi er sú
bók til nú, svo menn viti. Næstu sálmabókina, hina elztu,
sem mennnú þekkja af íslenzkum sálmabókum, gaf útMar-
teinn Einarsson, biskup í Skálholti, 1555. Formálinn fyrir
') Gott dœmi upp á vikivakalög er lagið við Frisadans lijer i sal'n-
inu o. fl.