Leita | Ítarleit | Titlar
Bók

Íslenzk þjóðlög


Höfundur:
Bjarni Þorsteinsson 1861-1938

Útgefandi:
S.L. Møller, 1906

í Gegni Textaleit

998 blaðsíður




Skrár
PDF (167,4 KB)
HQ PDF (419,4 KB)
JPG (373,1 KB)
TXT (2,1 KB)

Deila







þú þarft að vera með Adobe Reader Plugin til að skoða þessa síðu.

get Adobe Reader


þeirri bók er eptir þá verandi Sjálandsbiskup Petrus Palla-
dius. Marteinn biskup lagði marga sálma út á íslenzku, og
voru útleggingar hans bæði betri en útleggingar Olafs bisk-
ups á undan honum og Gisla biskups á eptir honum. Prjú
eintök vita nienn að til sjeu af þessari bók. Næstu sálma-
bókina ásamt litaníu og skriptagangi gaf Gísli Jónsson biskup
i Skálholti út 1558, og er ekki til nema eitt eintak af þeirri
bók, svo menn viti.
Pá kom Guðbrandur biskup Porláksson til sögunnar, og
fyrir hans tilstilli kom út 1589 hin fyrsta sálmabók á
íslenzku með nótum. Ekki eru þar nótur neina víð nokk-
urn hluta sálmanna, en annað er verra, að rneira og minna
af nótum vantar aptan af flestum lögunum; það er sem sje
látið ráðast, hvað kemst af nótum í eina linu (eða tvær, ef
lagið er lengra), og svo er því alveg sleppt, sem afgangs vill
verða. Textinn er sjer og nóturnar sjer, þvi að nólurnar eru
settar svo þjett í linunum, að ómögulegt er að koma orð-
unum undir. Pessi bók' er töluvert sniðin eptir þeirri útgál'u
af hinni dönsku sálmabók Hans Thomissöns, er út kom 1586;
sú bók var notuð nær óbreytt í Danmörku frá 1569 til 1699,
að Kingós sálmabók kom út. Vjer Islendingar vorum enn þá
fastheldnari, því sálmabók Guðbrands biskups var nær því
óbreytt notuð hjer i meira en 200 ár, eða þangað til sálma-
bók Magnúsar Stephensens kom út 1801. En nokkrum sinn-
um var hún gelin út á því timabili, og var að eins ein út-
gáfan töluvert frábrugðin, og er það útgáfan 1772, og sem
vanalega er kölluð Höfuðgreinabókin. Fyrsta útgáfan,
1589, er vanalega kölluð Hólabókin, og sama nafni er 2. út-
gáfa bókariimar kölluð; en hana gaf Guðbrandur biskup úl
1619, og er sú útgáfa miklu betri en hin fyrri, ekki að eins
að því leyti, að þar koma fram margir nýir, frumorktir, góðir
sálmar, heldur einnig í'yrir þá sök, að nóturnar eru þar miklu
greinilegri og rjettari.
Guðbrandur biskup var fæddur á Staðarbakka í Miðlirði
1542 og andaðist á Hólum 1627. Hann var biskup á Hóbun
í 56 ár, og að öllu samtöldu einn himi merkasti og dugleg-
asti biskup, er vjer höl'um nokkru sinni átt.