Leita | Ítarleit | Titlar
Bók

Íslenzk þjóðlög


Höfundur:
Bjarni Þorsteinsson 1861-1938

Útgefandi:
S.L. Møller, 1906

í Gegni Textaleit

998 blaðsíður




Skrár
PDF (167,9 KB)
HQ PDF (415,3 KB)
JPG (368,2 KB)
TXT (2,1 KB)

Deila







þú þarft að vera með Adobe Reader Plugin til að skoða þessa síðu.

get Adobe Reader


í*ótt nokkuð væri af nótura í sálmabókura Guðbrands,
vantaði þó mjög mikið á, að þar væru nótur við alla sálm-
ana; þær bækur var því frekar að skoða sem sálmabækur
en sem söngbækur eða kóralbækur. í>að var Guðbrandur
Porláksson biskup, sem hljóp hjer undir bagga eins og með
íleira þarflegt; hann gaf út fyrstur manna íslenzka sálma-
söngsbók, er var í gildi frá þeim tíma og allt fram að 1801,
að sálmabók Magnúsar Stephensens kom út. Þessi sálma-
söngsbók var Grallarinn, og kom hin fyrsta útgáfa haris
út 1594; hann er að mörgu leyti sniðinn eptir Jespersöns
Graduale hjá Dönum, útg. 1573. Formálinn fyrir þessari
fyrstu útgáfu Grallarans er eptir Odd Einarsson, biskup i
Skálholti, og er fyrirsögnin: Um þann sálmasöng, sem
tiðkast í kristilegri kirkju, nokkur undirvísun af
lærðra manna bókum, þeira til fróðleiks, sem það
hafa ekki sjálfir lesið. Formáli þessi er hið fyrsta,
sem prentað er á islenzku um söng, en engin tilsögn í söng-
fræði er þar veitt. Oddur biskup var talinn mjög vel að sjer
i söng og söngfræði, og átti hann mjög mikinn og góðan
þátt í þessari 1. útg. Grallarans. Við næstu útg. Grallarans
samdi Guðbrandur biskup sjálfur forraálann, og stóð sá for-
máli um stund. Aptan við 6. útgáfu Grallarans er: Appendix.
sem er stutt undirvísun um' einfaldan söng, fyrir
þá, sem lítið eða ekkert þar út í lært hafa, en girn-
ast þó grundvöllinn að vita og sig fraraar að iðka.
fæssi Appendix er 7 bls., og er eptir Pórð biskup Þorlaks-
son, og er bann hin fyrsta söngfræði, sera prenttið hel'ur
verið á íslenzku, því.þar er kennt að þekkja nótur og lesa
úr „Gammanum" og einnig er stuttlega drepið á, hvernig
eigi að í'ara að syngja eptir nótum. Er Appendixinn i 6
greinum og er innihald greinanna þetta: „l.gr. Um Ganira-
ann og lyklana. 2. gr. Um linan og harðan söng eður þar á
milli; cantus mollis, cantus dui-us, og þar á milli er cantus
naturalis. 3. gi\ Um samhljóðandi nótur, sem söngvararnir
kalla intervalla musica, það er, viss bil milli hljóðanna.
4. gr. Um krapt og merking nótnanna, item ura dragnótur.
5. gr. Um nokkur teikn í söngnum. 6. gr. Um choral-söng