Leita | Ítarleit | Titlar
Bók

Íslenzk þjóðlög


Höfundur:
Bjarni Þorsteinsson 1861-1938

Útgefandi:
S.L. Møller, 1906

í Gegni Textaleit

998 blaðsíður




Skrár
PDF (171,9 KB)
HQ PDF (432,6 KB)
JPG (388,5 KB)
TXT (2,2 KB)

Deila







þú þarft að vera með Adobe Reader Plugin til að skoða þessa síðu.

get Adobe Reader


í kirkjunni maður nokkur, er Þorkell hjet, norðan í'rá Stein-
grímsfirði, og hafði hann geysi-mikil og skær hljóð. Var sagt,
að Þorkell sá væri afkomandi sira Þorkels á Hólum og hæri
hans nafn- Ætt síra Hjálmavs Þorsteinssonar i Tröllatungu
hefur verið kölluð söngætt, og söngur þess fólks Trölla-
tungu-söngur; þótti mörgum sá söngur ekki laus við við-
höfn. Tvísöngur hafði verið hjer algengur, jafnvel i kirkjum;
elcli eptir af því nokkuð fram yfir miðja öldina. Þá var hjer
Einar Gislason, er siðar dvaldi lengi í Fornahvammi; hafði
hann á yngri árum mikil og fögur hljóð og söng tvísöng
ágætlega vel; var hann orðinn roskinn, þegar jeg heyrði til
hans, og leyndi það sjer ekki, að rödd hans var baíði mikil
og góð. Það hefur vafalaust verið sá Einar, er síra JónÞor-
leifsson nefnir i pistli sínum og kallar Einar i Feykishólum,
því Einar bjó í Feykishólum um það leyti, sem Jón Þorleifs-
son var lærisveinn hjá Búa prófasti Jónssyni á Prestsbakka.
En lýsing hans á Einari er ekki allskostar rjett eða eðlileg,
þar sem Einar hafði ágæt sönghljóð og var óreiðigjarn gleði-
maður«. Hjer að auki minnistFinnur á það i brjefi til min,
að systir hans, Ragnhildur, ekkja Sigurðar Sverrisens sýslu-
manns, haíi verið töluverð söngkona og kunnað gömlu lögiu
ágætlega vel og rjett.
í Vatnsdal í Húnavatnssýslu voru framúrskarandi söng-
menn á fyrri hluta aldarinnar, og hafa reyndar verið lengi
siðan. Þá voru þar mestir söngmenn þeir Björn Blöndal
sýslumaður í Hvammi, faðir þeirra Blöndalsbræðra, Ólafur
sá, sem áður er getið, faðir Páls á Akri; bjó hann þá á Gils-
stöðum; og Sigurður á Eyjólfsstöðum, faðir Kannveigar þeirrar
á Prestsbakka á Síðu, er síðar verður nefnd. Á Undirfelli
voru prestarnir ágætir söngmenn, hvor eptir annan, þeir
sira Þorlákur, faðir Böðvars og þeirra mörgu bræðra, og
sira Sigfús; var hann af hinni nafnkunnu Reykjahliðarætt,
sem marga góða söngmenn hefur talið, t. d. síra Þorstein
Pálsson á Hálsi, ágætan söngmann, föður Sigriðar, er var
söngkona mikil, kona Skapta Jósepssonar. Þeir Blöndals-
bvæður, synir Björns sýslumanns i Hvammi, vovu flestiv
góðir söngmenn, og sumir ágætir; beztir voru taldir þeii-