Leita | Ítarleit | Titlar
Bók

Íslenzk þjóðlög


Höfundur:
Bjarni Þorsteinsson 1861-1938

Útgefandi:
S.L. Møller, 1906

í Gegni Textaleit

998 blaðsíður




Skrár
PDF (170,2 KB)
HQ PDF (423,7 KB)
JPG (379,2 KB)
TXT (2,2 KB)

Deila







þú þarft að vera með Adobe Reader Plugin til að skoða þessa síðu.

get Adobe Reader


niínu, á árunum 1820 til 1830, en hef ekki sjeð þær síðan
og munu þær vera liðnar undir lok".
Fleiri upplýsingar en þessar um fiðlur eða fiðluspil gat
jeg ekki fengið úr þeim bókum, sem jeg hafði haft undir
hendi, og voru þær upplýsingar ærið ófullkomnar. Jeg skril'-
aði því i öll þau hjeruð á landinu, þar sem jeg með nokkru
móti gat ímyndað mjer, annaðhvort að gamlar fiðlur væru
til, eða þá einhverjir þeir menn, sem hefðu þekkt íiðlur eða
leikið á þær i ungdæmi sínu. Ekki eru allar ferðir til fjár
og þóttust menn alls engar upplýsingar geta gefið, alls ekki
þekkja íiðlur nú orðið og ekki hvernig fiðluspili hefði verið
háttað,— nema í einni sveit í Þingeyjarsýslu. Engin gömul
liðla var að visu þar til svo menn vissu, en þar voru til menn,
sem höfðu sjeð fiðlur, sem höfðu heyrt spilað á fiðlu, sem
höfðu sjállir spilað á iiðlu, og sem treystu sjer til að smiða
iiðlu, sem algjörlega líktist þeim fiðlum. er þeir höfðu sjeð
á æskuárum sínum.
Mesta hjálp í þessum eí'nuni veitti mjer trjesmiður Ste-
fán Erlendsson i Ólafsgerði í Kelduhveríi, sonur Erlendar
sáluga Gottskálkssonar í Garði, rúmlega íimmtugur maður
(f. 1854); smiðaði hann fyrir mig sjmishorn af fiðlu og gaf
mjer ýmsar mikilvægar upplýsingar um þetta hljóðfæri og
aðferðina við að spila á það. Skal jeg nú reyna að lýsa
fiðlu þeirri, er hann sendi mjer, og einnig til færa meginat-
riði þess, er hann hefur skrifað mjer viðvíkjandi þessu máli.
Fiðlan er aílangur kassi,'með hliðum, göflum og botni;
hliðfjalirnar og botninn er úr mjög þtmnum fjölum; kassinn er
hjer um bil 78 cm. álengd, 14'cm. á breidd í annan endann en
17 cm. í hinn og 14 cm. á dýpt; kassi þessi er ávallt á hvolfi,
þegar spilað er. Upp úr botninum fast við breiðari gaflinn
standa tveir sívalir trje-naglar, 13 cm. háir, og voru þeir
venjulega renndir; þeir lágu' niður í gegn um botninn og
töluvert inn i fiðluna fast við gaflinn; nálægt 7 cm. voru'á
milli þeirra, og var mjótt gat i gegn um efri enda hvors
þeirra. Utan i hinuni gallinum voru tveir naglar með 7 cm.
millibili. Tveir strengir voru á fiðlunni; sinn strengurinn
var kræktur vel á hvorn þessara nagla, og svo lágu streng-