(12) Page [12]
BÓK A SÝ N1N G
Þessari bókasýningu er aetlað að veita nokkra hugmynd um bækur, sem
nýlega hafa komið út í Bretlandi um ýmisleg efni. Það er alkunna, að mik-
ill forði brezkra bóka hefur týnzt síðan styrjöldin hófst. Vegna pappírs-
eklu eru nú bækur ekki eins fallega prentaðar og bundnar eins og áð-
ur var, og Bretar voru svo frægir fyrir. Sýningin er því merkari að efni
en útliti.
Til hægðarauka er bókunum skipað í flokka eftir efni.
HEIMSPEKI. Þessar bækur sýna sérkennilegar enskar stefnur í heim-
speki og sálarfræði á seinni árum.
LÆKNISFRÆÐI. I þessum flokki eru mörg ný vísindarit, og auk þess
margar alþýðlega ritaðar bækur um sama efni. Einnig er hér fjöldi
bóka um hjúkrun.
3. LOGFRÆÐI. I þessari deild eru bækur helzt við hæfi lögfræðinga,
þótt þar séu nokkrar alþýðlega ritaðar bækur.
4. GUÐFRÆÐI. Auk þess sem þessi flokkur inniheldur rit um hreina
guðfræði, eru og í honum merkileg rit um efni, sem er sí og æ að verða
mikilsverðara í augum Breta, þ. e. a. s., viðhorf kirkjunnar við erfið-
leikum þeim, sem einstaklingar og heilar þjóðir eiga nú við að stríða,
bæði í stjórnmálum og þjóðfélagsmálum.
5. ENGLAND OG ENGLENDINGAR. Nokkrir bókaútgefendur, sérstak-
lega Batsford, hafa ávallt gert tiltölulega mjög mikið að því að gefa út
bækur um enskar sveitir og líf ensku þjóðarinnar. Þetta litla safn sýnir
fáeinar þessara fagurlega rituðu og myndum prýddu bóka.
6. “DISCUSSION BOOKS”. Frjálsar, krítiskar umræður um stjórnmál og
þjóðfélagsmál hefur alla stund verið einkenni Breta. Þessari útgáfu, sem
hafin var fyrir nokkrum árum, og heldur enn áfram, er ætlað að veita
almenningi skýrar og áreiðanlegar. upplýsingar um mörg þau vandamál
nútímans, sem öllum koma við.
1.
2.