loading/hleð
(13) Page 13 (13) Page 13
SKOTTHÚFA Heimilisiðnaðarfélag íslands. Kvenfélagasamband íslands. Þjóð- dansafélag Reykjavíkur. Reykjavík 1974. Prentsmiðjan Edda hf. Undanfarna áratugi hefur saumuð skotthúfa úr flaueli orðið algeng- ast höfuðfat við íslenska þjóðbúninginn á kostnað prjónuðu skott- húfunnar. Prjónahúfan hefur þó flesta kosti fram yfir flauelshúfuna. Hún er fallegri í sjálfu sér, klæðilegri og hentugri. Konur, sem eiga eða hafa í huga að koma sér upp íslenskum búningi, ættu því hiklaust að taka prjónuðu húfuna fram yfir þá saumuðu. Það getur ekki talist mikil þraut fyrir þann, sem hefur sæmilega sjón, að prjóna eina skotthúfu. Þó að garnið sé fínt og prjónarnir grannir, er fatið svo fjarska lítið að því verður lokið á fáeinum klukkustundum. Hér fer á eftir uppskrift af prjónaðri skotthúfu. Efnið er fínt, þrinn- að, svart garn, 15-20 g. Sokkaprjón nr. lj/2. Fitja laust upp 220 1. á fjóra prjóna (55 1. á prjón). Prjóna áfram slétt prjón 4% cm eða meira, ef húfan á að vera djúp. Þá er byrjað að taka úr. Þess er gætt, að sem minnst beri á úrtökunni. Alltaf eru teknar úr 4 lykkjur í einni úrtökuumferð, eða aðeins 1 lykkja á hverjum prjóni. Urtökulykkjurnar mega ekki koma hver ofan við aðra, heldur er þeim dreift eftir vissum reglum. Urtökunni er hér skipt í fimm áfanga. I. úrtaka: 1. umferð: 2 1. saman, 53 1. sléttar. 2. umferð: slétt án úrtöku. 3. umferð: 5 1. sl., 2 1. saman, 47 1. sl. 4. umferð: slétt án úrtöku. 5. umferð: 10 1. sl., 2 1. saman, 41 1. sl. Þannig er haldið áfram. Með hverri umferð prjónað 5 lykkjum meira að úrtökulykkjunum. Eftir hverja af fyrstu fjórum úrtöku- umferðunum er prjónuð ein umferð án úrtöku, eftir það er tekið úr í hverri umferð. Síðasta umferðin og sú 13. í þessum áfanga (9. úr- tökuumferð) verður þá: 40 1. sl., 2 1. saman, 5 1. sl. (46 1. á prjóni). II. úrtaka: 1. umferð: 2 1. saman, 44 1. sl. 2. umferð: 4 1. sl., 2 1. saman, 39 1. sl. 3. umferð: 8 1. sl., 2 1. saman, 34 1. sl. o. s. frv. 9. umferð: 32 1. sl., 2 1. saman, 4 1. sl. (37 1. á prjóni). III. úrtaka: 1. umferð: 2 I. saman, 35 1. sl. 2. umferð: 3 1. sl., 2 1. saman, 31 1. sl. 3. umferð: 6 1. sl., 2 1. saman, 27 1. sl. o. s. frv. 9. umferð: 24 1. sl., 2 1. saman, 3 1. sl. (28 1. á prjóni). IV. úrtaka: 1. umferð: 2 1. saman, 26 1. sl. 2. umferð: 2 1. sl., 2 1. saman, 23 1. sl. 3. umferð: 4 1. sl., 2 1. saman, 20 1. sl. o. s. frv. 9. umferð: 16 1. sl., 2 1. saman, 2 1. sl. (19 1. á prjóni). V. úrtaka: 1. umferð: 2 1. saman, 17 1. sl. 2. umferð: 1 1. sl., 2 1. saman, 15 1. sl. 3. umferð: 2 1. sl., 2 1. saman, 13 1. sl. o. s. frv. 9. umferð: 8 1. sl., 2 1. saman, 1 1. sl. (10 1. á prjóni). í næstu þrem umferðum er lykkjum fækkað í 7 lykkjur á prjón. Þá er skottið prjónað jafnlangt húfunni, lykkjum aftur fækkað í 5 lykkj- ur á prjón í tveim umferðum, 1 til 2 umferðir án úrtöku prjónaðar á milli. Síðan er enn prjónað um IV2 cm. Fellt af. Saumaður inn örmjór faldur, húfan pressuð og skottið teygt lítið eitt um leið. Þegar húf- an er látin rísa að framan er dregið í blábrúnina og hún aðeins látin hafast við á 8 til 10 cm bili. Hólknum er síðan smeygt upp á og skúfur saumaður við skottið.


Íslenskir þjóðbúningar.

Author
Year
1974
Language
Icelandic
Pages
14


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Íslenskir þjóðbúningar.
https://baekur.is/bok/811d7d74-8ed4-499c-a81b-b5e4bd0c6e95

Link to this page: (13) Page 13
https://baekur.is/bok/811d7d74-8ed4-499c-a81b-b5e4bd0c6e95/0/13

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.