(3) Blaðsíða 3
ÁBENDINGAR
um peysuföt tuttugustu aldar
Uér verða taldir iipp aðalhlutar
búningsins og þeim lýst í stuttu
máli.
Peysa (stakkpeysa)
Peysan er úr svörtu klæði með
svörtu flaueli á börmum og framan
á ermum. Á peysunni neðanverðri
að aftan er mjótt, smá- og þéttfellt
stykki, stakkur, og er peysan stund-
um nefnd eftir því (sjá mynd bls.
6).
Peysan er krækt að framan, nema
hvað hún er höfð lítið eitt opin yfir
brjóstið og sér þá í hvítt, sterkjað
peysubrjóst.
Við hálsmál peysunnar er þrætt
og hnýtt slifsi.
Undir ermarnar framanverðar er
stundum þrædd mjó, hvít eða svört
blúnda, oft orkeruð (sjá fyrirsögn
og myndir bls. 10—11),
Pils
Pilsið er með sömu gerð og upp-
hlutspils (sjá Islenskir þjóðbúning-
ar I. TJpphlutur, sniðörk): svart,
skósítt, fellt undir streng (frá
vinstri til hægri séð aftan frá), þétt-
fellt að aftan, minna fellt á mjöðm-
um, en slétt að framan. Það er með
30 cm breiðu skófóðri.
Skotthúfa
Húfan (skotthúfan) er svört
með um 35 cm löngum skúf úr
svörtu silki. Á húfunni er hólkur
(skúfhólkur) úr hvítu eða gylltu
silfri eða úr gulli (sjá myndir bls.
8).
Húfunni fylgja svartir títuprjón-
ar með svörtum glerhnúð og e.t.v.
húfuprjónar úr silfri, hvítu eða
gylltu (sjá mynd bis. 8).
Svunta
Svuntan er með sömu gerð og
upphlutssvunta (sjá íslenskir þjóð-
búningar I. Upphlutur, bls. 5): felld
undir streng (í sömu átt og pilsið),
og er strengurinn hnepptur, gjarn-
an með svuntuhnappi úr silfri eða
gulli, eða kræktur með svuntupör-
um úr hvítu eða gylltu silfri (sjá
mynd bls. 12).
Slifsi
Slifsið er með ýmsum gerðum og
litum, nú oftast ljósleitt eða hvítt
(sjá myndir bls. 4 og 5). Slifsinu
fylgir slifsisnœla úr hvítu eða gylltu
silfri (sjá einnig myndir bls. 12).
fírjóst (peysubrjóst)
Peysubrjóstið er sterkjað, úr
hvítu léret'ti, lagt hvítu bómullar-
milliverki, stundum útsaumuðu eða
hekluðu (sjá mynd bls. 9).
fíelti
Belti á ekki að nota við peysuföt.
Sokkar
Sokkar eru svartir og ógagnsæir.
Skór
Skór eru svartir og sem látlaus-
astir. Forðast ber opna bandaskó,
mjög háhælaða skó og skó með
mjög þykkum sólum.
Rétt þykir að undirstrika að
peysa, pils, húfa, sokkar og skór
eiga að vera í svörtum lit.
Æskilegt er
— að peysan sé úr lipru ullarefni,
þ.e. klæði eða þvílíku.
— að skotthúfan sé úr ullarbandi,
Framhald á næstu síðu.
3