loading/hleð
(6) Blaðsíða 4 (6) Blaðsíða 4
sem byggi þær undir húsmóðurstarfið. Þá voru sett Lög nr. 65/1941 um húsmæðrafræðslu í kaupstöðum, 13) í þeim tilgangi að veita stúlkum þá fræðslu og tækni, sem nauðsynleg er til að inna af hendi heimilisstörf og stjóma heimili. Á millistríðsárunum setti húsmæðrahugmyndafræði mark sitt á kvenréttindahreyfinguna jafnt hér á landi sem annars staðar og áttí marga talsmenn innan hennar. Lagalegt jafnréttí tíl menntunar og embætta hefur því ríkt á íslandi frá 1911. í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 65/1985 14) er kveðið á um jafna möguleika kynjanna í menntunarmálum. í 2.gr. seglr, að konum og körlum skuli með stjómvaldaaðgerðum tryggðir jafnir möguleikar til menntunar. Þar segir ennfremur: "Konur og karlar skulu njóta sömu möguleika til framhaldsmenntunar og/eða starfsþjálfunar og til að sækja námskeið, er haldin eru til að auka hæfni í starfi eða til undirbúnings annarra starfa." Það er ljóst að mennmn kvenna hefur aukizt vemlega undanfama áratugi. Þeim fjölgar sífellt, sem hafa að baki háskólanám, en hlutfallslega hafa þær minni menntun en karlar. Hinsvegar benda kannanir tíl þess, að konur og karlar velji sér mismunandi menntunarleiðir. Námsval kvenna hefur ekki breytzt mikið, þær velja störf sem tengjast umönnun og kennslu, sem almennt hefur í för með sér minni tekjumöguleika fyrir þær en karla. Þá hætta konur ffekar í námi en karlar og velja sér styttra nám. Ástæður þar að baki em margar, en oft er maki í námi, og böm og heimili hafa áhrif á starfsval kvenna. Hin nýju jafnréttíslög gera ráð fyrir því, að skólar leitíst við að breyta hefðbundnu starfs- og námsvali kynjanna. Lítíll vafi er á því, að tíl þess að breyta námsvali kynja þarf almenna hugarfarsbreytingu kvenna og karla. m. Árið 1885 markar ennfremur tímamót í baráttunni fyrir kosninearéttí kvenna. Þá bar Sighvatur Ámason bóndi í Eyvindarholtí í Vestur-Eyjafjallahreppi og þingmaður Rangæinga fram frumvarp, sem gerði ráð fyrir kosningarétti kvenna til Alþingis með sömu skilyrðum og körlum var tryggður sá réttur með stjómarskránni. Fmmvarpinu var vísað frá vegna þess að það fól í sér breytíngar á stjómarskránni. Sama sumarið hófst baráttan fyrir endurskoðun stjómarskrárinnar að marki, og fluttu Benedikt Sveinsson, Jón Ólafsson og Jón Sigurðsson fmmvarp til nýrrar stjómarskrár, sem fól í sér kosningarétt kvenna til Alþingis þótt ekki væri þar gert ráð fyrir kjörgengi þeirra. Frumvarpið var samþykkt en synjað staðfestingar konungs. Málinu var hreyft á aukaþingi ári síðar en hlaut sömu afgreiðslu. Með þinginu 1891 fór krafan um kosningarétt kvenna að verða háværari og kom nú einkum frá aðilum utan þings. Nú vom konur komnar tíl skjalanna og er þar helzt


Breytingar á réttarstöðu íslenskra kvenna á 20. öld

Ár
1987
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
24


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Breytingar á réttarstöðu íslenskra kvenna á 20. öld
https://baekur.is/bok/f220480d-dfcb-4e14-9632-c7ab628fa96a

Tengja á þessa síðu: (6) Blaðsíða 4
https://baekur.is/bok/f220480d-dfcb-4e14-9632-c7ab628fa96a/0/6

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.