
(3) Page [3]
ársins, Úrsögn úr félaginu sé komin til stjórn-
arinnar fyrir aðalfund.
6. gr.
Aðalfund skal halda í janúarmánuði ár hvert,
7. gr.
Á aðalfundi skal kjósastjórn félagsins, leggja
fram reikninga þess fyrir umliðið ár, endurskoð-
aða af endurskoðunarmönnum, og skýra að öðru
leyti frá hag og framkvæmdum félagsins á árinu.
8. gr.
Stjórn félagsins skipa þrír menn: formaðurr
ritari og gjaldkeri. Formann skal kjósa skrif-
legri kosningu til þriggja óra í senn og má ekki
að þeim liðnum endurkjósa hann fyr en liðin
eru þrjú ár frá þvi er hann síðast hætti for-
mannsstörfum. Ritari oggjaldkeri skulu og kosnir
skriílega til eins árs í senn og má að því loknu
endurkjósa þá. Þá skal og kjósa tvo endur-
skoðunarmenn. Stjórnin hefir á hendi æðsta
framkvæmdarvald í félaginu.
9. gr.
Nú fellur einhver stjórnanda frá á miðju fé-
lagsári, skal þá þeim af stjórnöndum, sem eftir
eru, heimilt að kveðja sér til aðstoðar einhvern
af félagsmönnum fyrir þann tíma, sem eftir er
til aðalfundar.
10. gr.
Formaður kveður til funda þegar honum
þykir þess þörf eða ef tíu félagsmenn óska þess.
Annars má með einfaldri fundarályktun ákveða
fasta fundi. Formaður stjórnar öllum fundum.