loading/hleð
(8) Page [6] (8) Page [6]
líf í list, sem glímir við þau vandamál, sem þróunin hefur skapað. Sú myndlist, sem eingöngu er framleidd fyrir augað, án hugsjónar og vandamála tímans, án þess að auka þróunina í heild á sína vísu, er einskisvirði og dauð. Framleiðendur slíkra verka eru því opinberir svikarar, er pranga dauðanum inn á auð- trúa fólk, einustu svikarar sem engin hegningarlög ná til. En tíminn er harður dómari og miskunnarlaus, sem ætíð flettir loddarann klæðum og skilur eftir hinn þröngsýna með verðlaust glingur. Hegning hans er óumflýjanleg. Svikalistin verður að verðlausu skrani sem hafnar á háaloftinu eða í öskuhaugum. Lesandi góður, við skulum ætíð hafa hugfast, að blekking er aðeins möguleg ef fá- kunnátta og leti eru fyrir hendi. Þekkingin mótar tilfinningarnar og gefur okkur þann andlega þroska sem hverri mannveru er eins mikil nauðsyn og loft. Lífið er stutt og við erum smáar verur, en heimurinn er ótæmandi þeim sem vilja skynja og sjá. Sjóndeild- arhringurinn getur ætíð víkkað. Listaverkið krefst tveggja listamanna, svo þess sem nýtur þess. GUÐMUNDA ANDRÉSDÓTTIR því geti auðnast líf: Þess sem skapar það og Valtýr Pétursson


Septembersýningin 1952.

Year
1952
Language
Icelandic
Pages
28


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Septembersýningin 1952.
https://baekur.is/bok/525c0e31-f083-453f-9f73-eb6bcfd0a161

Link to this page: (8) Page [6]
https://baekur.is/bok/525c0e31-f083-453f-9f73-eb6bcfd0a161/0/8

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.