loading/hleð
(27) Blaðsíða 27 (27) Blaðsíða 27
enska list 19. aWarinnar, gífurlega mikil. Bæði Constable og Turner þáðu af hinni miklu snilli hans, en voru ])ó báðir of sjálfstæðir listamenn til þess að mótast verulega af þvi. Hins vegar var annar ungur listamaður, John Varley (1778—1842), sem segja má, að hafi algjörlega byggt á list Girtins, og varð það því mikilvægara, sem hann varð snjall og áhrifamikill kennari. A meðal nemenda hans, auk Linnell, Fielding og Hunt, var David Cox, sem seinna nýtur mestrar frægðar þeirra. David Cox er fæddur í bænum Deritend nálægt Birmingham árið 1783. Snemma réði hann sig að leikhúsinu í Birmingham, þar sem hann vann við að steyta liti, og nokkru seinna var hann ráðinn tjaldamálari leikhússins. 1804 flytur hann til Lund- úna og gerizt þar leiktjaldamálari við Astley Theatre, en það mun vera um þetta leyti, sem hann verður fyrst nemandi Varley’s. Margir þeirra, sem ritað hafa um Cox, hafa haldið því fram. að starf hans við leiktjöldin hafi sett varanlegt mót á list hans, og mun það rétt að því leyti, að hin mikla leikni og djarfa litasetning, sem hann gat tamið sér í því starfi, hneýkslunar- laust, hafi átt sinn þátt í að skipa honum á bekk með hinum framsæknustu ensku listamönnum á fyrri hluta 19. aldar. Cox er aldrei yfirborðslegur, kastar aldrei höndunum til mynda sinna, en hann kann þá tækni, eins og Constable, að lýsa liti sína, jafnvel þótt heildarflöturinn sé dökkur, með því að skipta litunum og nota þá sem hreinasta. Ekki sízt gerir hann það með því að setja nokkur pensilför, eða mála ákveðinn lilut með skærum lit, oft hárauðum, og hækka þannig allt litborðið og' gefa því aukið ljósmagn. Vatnslitamyndir Cox eru ekki síður athyglisverðar en olíumál- verkin, og má telja hann nokkurn brautryðjanda á því sviði. Hann jafnar ekki vatnslilinn yfir ákveðinn flöt myndarinnar. eins og þá tíðkaðist, heldur notar hann pensilinn mjög frjálslega, vinnur hratt, og gefur vatnslitamyndinni þannig litfyllingu, sem varla hafði þekkzt áður í enskri Iist. I landslagsmyndum sínum fylgir Cox þeirri stefnu, sem Consta- ble hafði markað, og er jafnan talinn með honum. ásamt Crome og Cotman, stofnendum hins merkilega Norwich skóla. 27


Nokkur gömul málverk

Ár
1949
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
32


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Nokkur gömul málverk
https://baekur.is/bok/61855dc1-6e01-4b0a-9fb8-05b3e94a937e

Tengja á þessa síðu: (27) Blaðsíða 27
https://baekur.is/bok/61855dc1-6e01-4b0a-9fb8-05b3e94a937e/0/27

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.