loading/hleð
(24) Page 18 (24) Page 18
18 fyrir mönnum um þrælafrelsi, bindiudi og kvennfrelsi1 2.— Frances Gage segir svo frá fundinum: nForstöðukonur fundarins urðu skjálfandi hræddar, þá er þær sáu háa, þrekna, svarta konu í gráum ldæðum og með hvíta skýlu og þar ofan á stóran og afkáralegan sólhatt, koma inn í kirkjuna og litast um, ganga síðan upp eptir kirkju- gólfinu og setjast á tröppurnar við prjedikunarstólinn. Menn gerðu þegar ys og þys og kurr allmikinn, og ýmsir fóru að kalla: »Mót fyrir þrælavini«*. »Kjettindi kvenna og svertingja". njpetta vissi jeg«. »Faröu út, svartur« o. s. frv. Jeg var þá í fyrsta skipti fundarstjóri á almennu móti, jeg bað menn um að vera rólega og gefa hljóð; hættu menn þá og mátti halda áfram ræðunum. Fundirnir fyrra og síðara hluta dagsins fóru fram með mesta friði og spekt. Sojournor gamla sat ávailt grafkyr með sólhattinu á höfðinu; hún sat hálfbogiu, studdi alnboguuum á knjen og höndunum, bæði stórum og skorpnum, undir kinnar og þagði eins og steinn. Á milli fundanna gekk hún milli manna og seldi »yEíisögu Sojourner Truths«, en það var æfisaga hennar sjálfrar, og hafði margt undarlegt og fáheyrt á daga hennar driíið. Hvað eptir annað komu menn til mín og sögðu með öndiua í háls- inum: »Látið hana eigi tala, frú Gage, það verður oss til mesta hnekkis. Hvert cinasta blað í ríkinu mun slengja máli voru saman við þrælamálið og skamma okkur út sem þræla- vini«. Jeg svaraði sjerhverjum: »Við skulum vera róleg, þangað til þar að kemur«. Næsta dag voru menn ákafir. Prestar af ýmsum trúar- flokkum, metodistum, baptistum, öldungatrúarmönnum, bisk- upatrúarmönnum og universalistum, komu til þess að hlusta 1) petta prennt hreif konur til'þess að tala, og er alveg ótrúlegt, hvað konur hafa afrekað í þessum greinum. Clarina Nichols var gjörð út af bindindisfjelagi; hún íerðaðist 900 danskar milur og lijelt fyrirlestra í 43 borgum og fjekk mjög misjafnar viðtökur. Frelsi þræla í Suðurríkjunum hjeldu ])ær mjög fram, og ef jeg man rjett, þá liefur prófessor Hölfding í fyrirlestri á háskólanum í Kaupmannahöfn þakkað þeim næsta mikið, að þrælarnir fengu frelsi. 2) Um þessar mundir voru þeir mjög hataðir, er hjeldu fram frelsi þrælanna.


Um frelsi og menntun kvenna

Year
1885
Language
Icelandic
Pages
44


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Um frelsi og menntun kvenna
https://baekur.is/bok/682ce388-d921-4f93-9183-180e0540fd8c

Link to this page: (24) Page 18
https://baekur.is/bok/682ce388-d921-4f93-9183-180e0540fd8c/0/24

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.