loading/hleð
(23) Blaðsíða 21 (23) Blaðsíða 21
nýju Zeta-deildar undirbúið heimsókn hópsins af miklum myndarbrag og var allt skipulag tveggja sólarhringa dvalar svo og skoðunarferð um staðinn til fyrir- ntyndar. Majorie Allen, alþjóðaforseti, ávarp- aði Vorstefnuna. Viðfangsefni hennar var ár læsis og fluttu sex Delta Kappa Gamma konur erindi um það efni. Um- ræðuhópar ræddu efnið og kynntu niður- stöður. Að lokum voru samþykkt tilmæli til allra deilda um að leggja áherslu á málefnið læsi barna á komandi starfsári. Stofnfundur og hátíðarkvöldverður var á föstudagskvöldi og heim var haldið, suð- urleiðina, eftir hádegi á laugardegi. Tengsl við Alþjóðasamtökin voru þó nokkur á tímabilinu. Utan hefðbundinna tengsla við aðalstöðvar samtakanna í Austin, Texas, mynduðust óvenju sterk tengsl við landssambönd Evrópulanda. Þau hófust á fundi NA-svæðisins í borg- inni Grand Rapids í júlí 1989 þar sem landsambandsforsetar Evrópulanda ákváðu að undirbúa tillögur til breytinga á lögum sem m.a. miðuðu að því að full- trúar landa utan Bandaríkjanna fengju sama rétt til ákvörðunartöku, þ.e.a.s. at- kvæðis- og tillögurétt, í fulltrúaráði og stjórn alþjóðasamtakanna eins og fulltrú- ar svæða í Bandaríkjunum. Þar sem landssambandsforseta Islands var falið að vera oddamaður Evrópulanda í þessu máli, og var frá 1990 kosinn fulltrúi Evr- ópu í alþjóðastjórn, komst málið strax á fyrsta fundi inn á borð stjórnar og fram- kvæmdaráðs hér á landi. Allir landssam- bandsforsetar Evrópu sameinuðust um tillögurnar og lögðu þær fyrir fram- kvæmdaráð hver í sínu landi þar sem þær voru samþykktar. Þeir sendu því allir sömu tillögurnar til alþjóðlegu laga- nefndarinnar og höfuðstöðva samtak- anna. Þetta reyndist eina ráðið tii að koma þeim inn á alþjóðaþingið í formi breytingatillagna. Tillögurnar voru tekn- ar fyrir á alþjóðaþinginu í New Orleans sumarið 1990. Fæstar hlutu brautargengi og baráttan hélt áfram. Næst þegar laga- breytingar voru teknar fyrir komust lleiri tillögur í gegn en enn er björninn ekki unninn í þessu máli. Síðara starfsár kjörtímabilsins var nokkuð annasamt þar sem starfið sem fulltrúi Evrópu í alþjóðastjórn Delta Kappa Gamma hófst það ár. Þetta hafði þó þann kost að frábært tækifæri gafst til að berjast fyrir frekari lagabreytingum og kynnast starfi, málefnum og skoðun- um félaga í öðrum löndum þar sem emb- ættið skapaði tækifæri til þess að sitja alla landssambandsfundi samtakanna í Evrópu. Landssambandsþing vorið 1991 var haldið í Bifröst í Borgarfirði. Þáverandi forseti Alþjóðasamtaka AKT, Dr. Janet Shelver, sótti þann fund og má segja að það hafi þótt tíðindum sæta að sama land skyldi fá heimsókn forseta samtakanna tvö ár í röð. Það sem hæst ber í minningunni frá fé- lagsstarfinu á þessum tveimur árum er ánægjulegt og mjög gefandi samstarf við tjölda Delta Kappa Gamma kvenna. 21
(1) Kápa
(2) Kápa
(3) Blaðsíða 1
(4) Blaðsíða 2
(5) Blaðsíða 3
(6) Blaðsíða 4
(7) Blaðsíða 5
(8) Blaðsíða 6
(9) Blaðsíða 7
(10) Blaðsíða 8
(11) Blaðsíða 9
(12) Blaðsíða 10
(13) Blaðsíða 11
(14) Blaðsíða 12
(15) Blaðsíða 13
(16) Blaðsíða 14
(17) Blaðsíða 15
(18) Blaðsíða 16
(19) Blaðsíða 17
(20) Blaðsíða 18
(21) Blaðsíða 19
(22) Blaðsíða 20
(23) Blaðsíða 21
(24) Blaðsíða 22
(25) Blaðsíða 23
(26) Blaðsíða 24
(27) Blaðsíða 25
(28) Blaðsíða 26
(29) Blaðsíða 27
(30) Blaðsíða 28
(31) Blaðsíða 29
(32) Blaðsíða 30
(33) Blaðsíða 31
(34) Blaðsíða 32
(35) Blaðsíða 33
(36) Blaðsíða 34
(37) Blaðsíða 35
(38) Blaðsíða 36
(39) Blaðsíða 37
(40) Blaðsíða 38
(41) Blaðsíða 39
(42) Blaðsíða 40
(43) Blaðsíða 41
(44) Blaðsíða 42
(45) Blaðsíða 43
(46) Blaðsíða 44
(47) Blaðsíða 45
(48) Blaðsíða 46
(49) Blaðsíða 47
(50) Blaðsíða 48
(51) Kápa
(52) Kápa
(53) Kvarði
(54) Litaspjald


Félag kvenna í fræðslustörfum 20 ára

Ár
1997
Tungumál
Íslenska
Efnisorð
Blaðsíður
52


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Félag kvenna í fræðslustörfum 20 ára
https://baekur.is/bok/97da6f60-31cc-4bf4-bf13-8fe188a9c772

Tengja á þessa síðu: (23) Blaðsíða 21
https://baekur.is/bok/97da6f60-31cc-4bf4-bf13-8fe188a9c772/0/23

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.