(13) Blaðsíða 13
25 ára afmælisrit Stómasamtakanna
Stjóm Stómasamtaka íslands 2005-2006, talið frá vinstri: Jón Þorkelssson,
Rósa Rögnvaldsdóttir, Ingibjörg Vilbergsdóttir, Kristján Freyr Helgason,
Inger Rós Jónsdóttir, Kjartan Sigurjónsson.
hjúkrunarfræðingur til viðbótar yrði
kostaður til náms. Tveim árum síðar
er samþykktur styrkur til Bergljótar
Þórðardóttur að upphæð 200.000 kr. Var
það sama upphæð og Oddfríður fékk.
1. janúar 1996 fær Oddfriður starfs-
leyfi fyrir heimahjúkrun sem er 50%
eða 30 vitjanir á mánuði að hámarki.
Var starfsleyfið byggt á samningi milli
Hjúkrunarfélags íslands og Félags
háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga
annars vegar - en þessi félög hafa
sameinast í Félagi íslenskra hjúkrunar-
fræðinga - og TR hins vegar frá febrúar
1993 um hjúkrun í heimahúsum vegna
alvarlegra og langvinnra sjúkdóma og
slysa.
Foreldrahópurinn
Ásthildur Þorsteinsdóttir og Drífa
Leons-dóttir komu á félagsfund 21.
apríl 1993 til að kynna hóp sem nefndist
Foreldrar barna með stóma en hópur
þessi hafði hist óreglulega í nokkur ár.
Á aðalfundinum 5. maí 1994 flutti Drífa
Leonsdóttir erindi um stómabörn. Á
þeim fundi var lögum Stómasamtakanna
breytt á þann veg að foreldrahópurinn sé
sjálfstæður aðili innan samtakanna og
eigi jafnframt fulltrúa í stjórn þeirra. Anna
Halldórsdóttir var þá kosin í stjórn sem
fulltrúi foreldrahópsins.
Á fyrsta stjórnarfundi eftir þennan
aðalfund var tekin sú ákvörðun að
foreldrahópurinn fengi allan hagnað af
merkjasölu Krabbameinsfélagsins sem
átti að koma í hlut Stómasamtakanna.
Foreldrahópurinn ákvað að þessum
hagnaði yrði valið til að styrkja unglinga
með stóma til að taka þátt í sumarbúðum
norrænna stómasamtaka sem eru
ætlaðir unglingum með stóma.
Fulltrúi hópsins, Anna Halldórsdóttir,
fór ásamt formanni á norrænt þing í
Álasundi 24.-27. ágúst 1996 þar sem
fjallað var m.a. um starfsemi fyrir börn og
unglinga með stóma.
í október 1995 var stofnaður félags-
skapur sem heitir Umhyggja - félag til
stuðnings sjúkum börnum. Umhyggja
eru samtök foreldrahópa barna með
langvinna sjúkdóma, fagfólks og annarra
einstaklinga sem áhuga hafa á málefnum
langveikra barna. Foreldrar barna
með stóma voru frá fyrstu tíð aðilar að
þessum félagsskap og var fulltrúi þeirra
Margrét Ómarsdóttir.
Foreldrarhópurinn tók virkan þátt í
Norðurlandafundi stómasamtaka 1996
sem haldinn var á Akureyri. Starfsemi
foreldrahópsins var kynnt, tvær mæður
greindu frá því hvernig er að ala barn
með varanlegt stóma annars vegar og
hins vegar sögðu foreldrar reynslu sína
af því að annast barn með tímabundið
stóma. Var góður rómur gerður að
þessum erindum.
Foreldrahópurinn gaf út á árinu 1999
vandaðan bækling sem heitir Börn með
stóma - umönnun og þarfir. Stóma-
hjúkrunarfræðingar og barnalæknir
unnu þennan bækling ásamt foreldrum
barna með stóma. Hann er fyrst og
fremst ætlaður foreldrum barna með
stóma en þar er að finna nauðsynlegar
leiðbeiningar varðandi umönnun stómans
ásamt ýmsum gagnlegum upplýsingum.
Þessi bæklingur er í möppuformi þannig
að hægt er að bæta inn í efni eftir þörfum.
Hægt er að nálgast hann á sjúkrahúsum
og hjá söluaðilum stómavara.
Því miður lognaðist starfsemi
Foreldrahópsins út af í byrjun þessarar
aldar. Ein ástæða þess er vafalítið sú að
með aukinni þróun í aðgerðum eru börn
nú skemur með stóma en áður.
Aðild að Krabbameinsfélaginu og
Öryrkjabandalaginu
Stómasamtök íslands hafa alla tíð verið
undir verndarvæng Krabbameinsfélags
íslands enda ávallt litið svo á að þau
væri einn af stuðningshópum þess. Þau
hafa haft skrifstofuaðstöðu í húsnæði
Krabbameinsfélagsins, haldið félagsfundi
þar, fengið aðstoð frá félaginu við útgáfu
Fréttabréfsins auk velvildar í ýmsu
öðru formi. Það var þó ekki fyrr en á
aðalfundi Krabbameinsfélagsins 1986
sem Stómasamtökin eru samþykkt sem
fullgildur aðili. Engu að síður hefur alltaf
verið litið svo á þau störfuðu sjálfstætt
innan Krabbameinsfélagsins.
Á aðalfundi Stómasamtakanna 2004
var samþykkt að þau legðu inn umsókn
um aðild að Öryrkjabandalagi íslands.
Það var svo í október sama ár sem
13
(1) Blaðsíða 1
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44