loading/hleð
(3) Blaðsíða 3 (3) Blaðsíða 3
25 ára afmælisrit Stómasamtakanna Ávarp ritstjóra Kæri lesandi! Blað þetta sem hér kemur þér fyrir sjónir, er gefið út í tilefni 25 ára afmælis Stómasamtaka íslands 16. október 2005. Af ýmsum ástæðum hefur útgáfa þessi dregist fram yfir áramótin 2005/2006. Reynt hefur verið að hafa efni blaðsins sem fjölbreyttast og vanda það eins og kostur er. Viðamesta greinin er saga samtakanna þar sem einkum er lögð áhersla á aðdraganda að stofnun Stómasamtakanna og fyrstu starfsárin. Viðtöl eru við einstaklinga sem hafa langa reynslu sem stómaþegar, greinareftir skurðlækna um ristil- og þvagfæraaðgerðir, upplýsingar af ýmsu tagi sem koma að gagni þeim sem eru að fara í aðgerð eða eru nýkomnir úr henni, auk fróðleiks er snertir stómaaðgerðir og stómaþega. Ýmiss konar gögn í eigu Stómasamtakanna eins og fundargjörðir og bréf hafa komið að gagni við skráningu á sögu samtakanna og auk þess hefur sumt af því sem hér kemur fyrir sjónir birst áður í Fréttabréfi Stómasamtakanna. Þá eru birtir úrdrættir úr bókinni Krabbamein á íslandi - Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags íslands 50 ára, sem kom út 2004 með góðfúslegu leyfi ritstjóranna Jóns Gunnlaugs Jónassonar og Laufeyjar Tryggvadóttur. Sigurður Jón Ólafsson (Myndina tók Sveinbjörg Sveinsdóttir) Sérstakar þakkir eru færðar skurðlæknunum Tryggva Stefánssyni og Eiríki Jónssyni fyrir fróðlegar greinar í ritinu og Svövu Engilbertsdóttur næringarráðgjafa fyrir gagnlega upplýsingar um mataræði stóma- þega. Rúnar Sigþórsson tók viðtal við Magnús Aðalbjörnsson á Akureyri og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir. Allt annað efni er á ábyrgð undirritaðs. Að lokum eru öllum þeim sem lásu yfir efni blaðsins eða komu að því á einn eða annan hátt færðar alúðarþakkir fyrir framlagið. Á Þorra 2006 Sigurður Jón Ólafsson Efnisyfirlit Ólafur R. Dýrmundsson - viðtal... 4 Saga Stómasamtakanna................ 6 Heimsóknar- og stuðningsþjónustan. 14 Af þvagveitu, nýblöðru og endursköpun þvagvega............... 15 Hulda Pálmarsdóttir - viðtal....... 17 Krabbamein í ristli og endaþarmi. 19 Lög um réttindi sjúklinga.......... 21 Afmælishátíð 16. október 2005...... 22 Magnús Aðalbjörnsson - viðtal.... 24 Skurðaðgerðir vegna sáraristilbólgu. 26 Lög Stómasamtaka íslands............. 30 Inger Rós Jónsdóttir - viðtal........ 31 Leiðbeiningar um mataræði............ 33 Stuðningshópar Krabbameinsfélagsins................. 34 Gagnlegar upplýsingar................ 35 Örn Agnarsson - viðtal............... 37 Ingveldur Marion Hannesdóttir- viðtal.. 38 Jón Þorkelsson - viðtal.............. 40 Stómasamtök íslands voru stofnuð 16. október 1980. Þau eru hagsmunasamtök þeirra sem gengist hafa undir stómaaðgerð og garnapoka- og nýblöðruaðgerð. Stóma- samtökin eru aðilar að Krabbameinsfélagi Islands og Öryrkjabandalagi (slands. I heimsóknar- og stuðnings- þjónustu samtakanna eru einstaklingar sem hafa margra ára reynslu sem stóma- og garnapokaþegar. Stómasamtökin halda reglulega félagsfundi í húsnæði Krabbameins- félagsins að Skógarhlíð 8. Þeir eru auglýstir á heimasíðu samtakanna og í Fréttabréfinu sem kemur út nokkrum sinnum á ári. Stjórn Stómasamtaka íslands 2005/2006: Kristján Freyr Helgason formaður, Kjartan Sigurjónsson varaformaður, Jón Þorkelssson gjaldkeri, Inger Rós Jónsdóttir meðstjórnandi, Ingibjörg Vilbergsdóttir ritari og ritstjóri heimasíðu og Rósa Rögnvaldsdóttir varamaður. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Jón Ólafsson. Forsíðumynd: Stjórn Stómasamtakanna 2005-2006, fólk í fullu fjöri. 3
(1) Blaðsíða 1
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44


25 ára afmælisrit Stómasamtaka Íslands 1980-2005

Ár
2006
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
44


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: 25 ára afmælisrit Stómasamtaka Íslands 1980-2005
https://baekur.is/bok/ba45aae8-7b8b-4896-96a8-81d176881fb5

Tengja á þessa síðu: (3) Blaðsíða 3
https://baekur.is/bok/ba45aae8-7b8b-4896-96a8-81d176881fb5/0/3

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.