loading/hleð
(22) Blaðsíða 20 (22) Blaðsíða 20
Menningar- og tómstundarmál I Reykjavík eru höfuðstöðvar menningarlífs í landinu. Geysilegur fjöldi fólks nýtur þess sem listalíf borgarinnar hefur upp á að bjóða og fél- agsstarf er með miklum blóma. Framboð á list- viðburðum er á við það sem gerist í stórborgum erlendis og á stóran þátt í því aðdráttarafli sem borgin hefur fyrir alla landsmenn. Þrátt fyrir mikla grósku og óeigingjamt starf listamanna verður ekki sagt að Reykjavíkurborg búi vel að listum og tómstundastarfi. Hér em engir tónlistarsalir í eigu borgarinnar, frjálsir leikhópar eiga ekki í neitt hús að venda og aðeins tvö hús á vegum borgarinnar geta kallast menningarmiðstöðvar. Aðstaða almennings til tóm- stundastarfs er afar fábreytt. Hlutverk borgarinnar í mennigarmálum á fyrst og fremst að vera að skapa aðstæður til listsköpunar og tómstundaiðkana og styðja við bak listamanna í borginni. Mikill fjöldi fólks stundar íþróttir og útivem í tómstundum sínum. Kvenna- listinn vill leggja meiri áherslu á almenningsíþróttir en keppnisíþróttir með betra heilbrigði almennings í huga. 20


Stefnuskrá í borgarmálum 1986

Ár
1986
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
32


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Stefnuskrá í borgarmálum 1986
https://baekur.is/bok/bbfd88f5-f65e-45b2-aaee-8bbaf51cdffc

Tengja á þessa síðu: (22) Blaðsíða 20
https://baekur.is/bok/bbfd88f5-f65e-45b2-aaee-8bbaf51cdffc/0/22

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.