loading/hleð
(4) Blaðsíða [2] (4) Blaðsíða [2]
LISTASAFN ISLANDS ÞORVALDUR SKULASON YFIRLITSSÝNING OKTÓBER 1972 Þorvaldur Skúlason er fæddur 30. apríl 1906 á Borðeyri. Foreldrar hans voru Skúli Jónsson verzlunar- stjóri og kona hans Elín Theódórsdóttir. Þorvaldur fluttist ungur með foreldrum sínum til Blönduóss og dvaldist þar til ársins 1925, en það ár fór hann til Reykjavíkur og stundaði nám í málaralist hjá Ásgrími Jónssyni í 2 ár. Árið 1927 hélt Þorvaldur til Óslóar þar sem hann innritaðist í Listaháskólann og varð lærisveinn Axels Revold og Jean Heiberg. Dvaldist hann þar í 3 ár en var oftast heima á sumrin og mál- aði þá mikið. Árið 1933 hélt Þorvaldur til Parísar og stundaði þar nám hjá hinum heimsþekkta málara Marcel Gromaire. Hann dvaldi erlendis til 1940, ýmist í Danmörku, Ítalíu eða Frakklandi. Einnig ferð- aðist hann til Hollands og Belgíu. Hann hefur tekið þátt í miklum fjölda sýninga. Að sjálfsögðu hefur Þorvaldur haldið margar einkasýningar og þar að auki tekið þátt í samsýningum á Norðurlöndum og víðar í Evrópu, t. d. París, sýningunni Abstrakt list í 50 ár, 1957, einnig í Bandaríkjunum (Fifth International Hallmark Award í New York), árið 1960 og síðar í Colby College Art Museum í Maine, sú sýning var einnig sýnd í New York. Verk eftir Þorvald eru m. a. í listasöfnum í Gautaborg og Lundi, einnig á Italíu.


Þorvaldur Skúlason

Ár
1972
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
28


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Þorvaldur Skúlason
https://baekur.is/bok/d92f3396-c70f-4f8b-80dc-00ceab473834

Tengja á þessa síðu: (4) Blaðsíða [2]
https://baekur.is/bok/d92f3396-c70f-4f8b-80dc-00ceab473834/0/4

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.