
(15) Kvarði
GUÐMIPNDUR THO,R:S;TEINSSON
listmálari
f. 5. sept. 1891 — d. 26. júlí 1924
Skömmu eftir hið sviplega fráfall Guðmundar Thorsteinsson
barst það í tal milli nokkurra kunningja hans, að vel væri
viðeigandi, að efnt yrði til sýningar á myndum hans, svo
mikilli, að fengið yrði á einum stað yfirlit yfir hina fjölbreyttu
listastarfsemi hans. — Er nú fyrirætlun þessi loks komin í
framkvæmd.
Með sýningu þeirri, sem hjer birtist almenningi, gefst mönn-
um kostur á að kynnast öllum þáttum i list hans, hinum svip-
hreinu landslagsmyndum, lotning og alvöru helgimyndanna,
gáska og glettni teikninganna, hvort heldur þær eru tengdar
við efni þjóðsagna, ellegar runnar frá hugmyndum og æfin-
týrum hans sjálfs.
Skylt er hjer að þakka þeim mörgu, er sýndu þá velvild og
greiðvikni, að lána myndir sínar á sýningu þessa. — Þótt tek-
ist hafi að fá hjer ágætan sýningarstað, reyndist rúmið því
miður svo af skornum skamti, að eigi er hægt að koma öllum
myndunum fyrir í einu, og var því það ráð tekið, að skifta
um nokkurn hluta myndanna í miðjum sýningartíma, svo alt,
sem safnast hefir af myndum, geti komið fyrir almenningssjónir.