(3) Page [3]
GUNNLAUGUR SCHEVING 1904 - 1972
Þegar Gunnlaugur Scheving lést f desember 1972
arfleiddi hann Listasafn fslands aS öllum verkum smum.
Gjöfina mé flokka é eftirfarandi hétt eftir efni og éstandi:
12 olíumálverk, 306 vatnslitamyndir, 256 túsk- og vatnslita-
skissur, 329 túsk-, blek- og blýantsteikningar, 841 blek- og
býantsskissur, 36 litkrftarmyndir, 33 litkrítarskissur, 3 grafík-
myndir, 2 collage-myndir, 50 teiknibœkur og dagbœkur lista-
mannsins.
Eins og þessi flokkun gefur til kynna þá er gjöf Gunnlaugs
Schevings mikil að vöxtum og óvenjulega margbreytileg, allt
frá fyrstu frumdráttum að myndum til fullgerðra verka, og spannar
yfir allan listferil hans allt frá skútuteikningum á Seyðisfirði til
hinna stóru og voldugu sjávarmynda hans, sem hann vann að
skömmu fyrir andlát sitt.
Vatnslitamyndir skipa stórt rúm f gjöf Gunnlaugs Schevings,
en það efni var honum ávallt hugleikinn tjáningarmiðill. Mynd-
efnið er hér gjarnan innimyndir, þorpsmyndir, en þó ef til vill
fyrst og fremst landslag, sem hann málaði á staðnum og sýnir
leikni hans f meðferð efnisins og nœma skynjun hans fyrir marg-
breytilegum lit- og blœbrigðum náttúrunnar, samofin Ijóðrœnum
þýðleika, sem er aðal þessara verka.
Gunnlaugur Scheving hefur, eftirlifendum til mikillar gleði,
varðveitt af kostgœfni og alúð mikinn fjölda af skissum og undirbúnings-
myndum að stœrri verkum sfnum, sem listamenn fórna oft þegar
"stórhreingerningar" eiga sér stað á vinnustofunni. Þessi þáttur
gjafarinnar er einkar athyglisverður, þar eð þessar myndir gefa
möguleika til margvfslegs innsœis f listsköpun og vinnuaðferðir
listamannsins. Hér má oft fylgja ferli myndarinnar allt frá fyrstu
frumdráttum og síðan stig af stigi er myndhugmyndin tekur margvfs-
legum umbreytingum, allt f samrasmi við markmið og listrœnan