(7) Blaðsíða 7
7
þeir, sem ekki enn hafa lært að hafa gaman af mynd-
um hans, þeir læra það kannske þarna.
Fyrir mörgum árum heimsótti eg Kjarval á vinnustofu
hans í Kaupmannahöfn. Hann var þá nýlega búinn a<5
mála mynd af Austurbrúargötu. Eg ætlaSi að virða mynd-
ina vandlega fyrir mér, reisti hana upp við vegg og gekk
síðan um þvert gólf, til þess að skoða hana úr nokkurri
fjarlægð.
Er ég var kominn á minn sjónarstað, gekk Kjarval að
myndinni, hægum, rólegum skrefum, tók myndina, og sneri
þvi upp, sem eg hafði snúið niður, og sagði: „Eiginlega
á nú myndin að snúa svona.“
„Einmitt það,“ sagði eg, og hélt síðan áfram að horfa
á myndina. Mér fanst snúningurinn ekki skifta miklu máli.
í sýningunni í Markaðsskálanum snúa allar myndirnar
rétt. Vífilsfell snýr upp.
En sé Vífilsfell ekki með á myndunum, skiftir það venju-
lega elcki miklu máli, að mér sýnist, hvernig þær eru látn-
ar snúa.
ALÞÝÐUBL.:
Sýning Kjarvals í Markaðsskálanum.
í almennum trúarbrögðum er talað um þrjár persónur
guðdómsins, en þeirrar fjórðu er ekki getið, og þó getur
hinn þríeini guð ekki án hennar lifað. — Ef þessi fjórða
persónulega víðátta guðdómsins er ekki til, þá er um enga
list að ræða, heimurinn er guðlaus, lífvana og tómur.
Þessi sýning Kjarvals i Markaðsskálanum:
— Aldrei hefir merkilegri og innblásnari sýning verið
opnuð á íslandi — og aldrei sjúkari, frá almennu sjón-
armiði.
Engin auglýsing. Engin myndaskrá. Engin flokkun, núm-
er eða niðurröðun. Ekkert verð.
Eru þá myndirnar ekki til sölu?