loading/hleð
(4) Blaðsíða [2] (4) Blaðsíða [2]
Listasafnið og að almenningur fengi að njóta hinna ágætu mynda. Markús var stórhuga maður og hafði óbifandi trú á framtíð íslenskrar myndlistar og mun hafa séð í anda glæsilega safnbyggingu við hennar hæfi. Stórhug og ósk Markúsar ívarssonar hrundu ekkja hans og dætur þeirra í framkvæmd þegar Listasafn Islands var opnað almenningi 27. ágúst 1951. Þá gáfu þær frú Kristín og dæturnar Helga, Guðrún og Sigrún Listasafninu 56 listaverk úr safni Markúsar. Þessari rausnarlegu gjöf var þá lcomið fyrir í tveimur sýningarsölum, sem Þjóðminjasafnið lánaði við þetta tækifæri. Voru listaverkin þá þegar skráð í spjaldskrá í áframhaldandi númerum 888—943. Þegar svo tveir fyrrnefndir salir voru teknir undir vaxmyndasafnið, var hluta af safni Markúsar ívarssonar komið fyrir í sýningarsölum Listasafnsins innan um önnur verk þess, en ávallt auðkennd „Ur safni Markúsar Ivarssonar". Með gjafabréfi í des. 1965 var gengið til fulls frá þessari veglegu gjöf og var safn Markúsar ívarssonar síðan sýnt aftur í heild í maí 1966. Við það tækifæri gáfu mæðgurnar til viðbótar stórt olíumálverk eftir Jóhannes S. Kjarval „Sjá roðann á hnjúkunum háu" frá 1931. Mjög sérstætt og merkilegt verk á listferli Kjarvals. Safn Markúsar Ivarssonar er stærsta og ein merkasta listaverkagjöf, sem Listasafn Islands hefur hlotið til þessa. Höfðingsbragur og framtakssemi þeirra mæðgna er einstök og virðing þeirra og hlýhugur í garð Listasafns Islands er mikils metinn en vandþakkaður. Sýning sú sem hér hefur verið efnt til er í senn þakklætis- og virð- ingarvottur af hálfu Listasafnsins og jafnframt gefst almenningi enn tækifæri til að sjá í heild hina rausnarlegu gjöf. Selma Jónsdóttir.


Listasafn Íslands

Ár
1977
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
8


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Listasafn Íslands
http://baekur.is/bok/38ab2c2a-c6a3-4079-a460-6b77bd5db061

Tengja á þessa síðu: (4) Blaðsíða [2]
http://baekur.is/bok/38ab2c2a-c6a3-4079-a460-6b77bd5db061/0/4

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.