loading/hleð
(4) Blaðsíða [2] (4) Blaðsíða [2]
LISTASAFN ISLANDS GUNNLAUGUR SCHEVING VFIRLITSSÝNING / NÓV.-DES. 1970 Gunnlaugur Scheving er fæddur 8. júní 1904 í Reykjavík. Dvaldist á Austurlandi hjá fósturforeldrum sínum Jóni St. Scheving og konu hans Guðlaugu Jónsdóttur til ársins 1921, síðan í Reykjavík í tvö ár og fékk þar tilsögn í teikningu hjá Guðmundi Thorsteinssyni listmálara og Einari Jónssyni myndhiiggvara. Fór til Dan- merkur til myndlistarnáms haustið 1923. Var á teikniskóla Viggo Brandts þann vetur. Ári síðar fór Gunn- laugur til Kaupmannahafnar á ný og þá á Listaháskólann og var þar við nám á árunum 1925—1929. Gunnlaugur Scheving sýndi í fyrsta skipti á Seyðisfirði á námsárum sínum. Eftir heimkomuna sýnir Gunn- laugur í Reykjavík m. a. í Varðarhúsinu, í húsi Garðars Gíslasonar við Hverfisgötu og einnig í Oddfellow- húsinu. Síðan hefur hann haldið margar sérsýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði utanlands og inn- an. Má þar nefna þátttöku í sýningu í Grænmetisskálanum, Septembersýningum öllum og sýningu með Þor- valdi Skúlasyni. Hefur tekið þátt í samsýningum í Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð, Bruxelles, Lon- don, New York, Róm og á þessu ári í Anneberg-Samlingerne í Nyköbing á Sjálandi með Sigurjóni Olafssyni. Verk eftir Gunnlaug Scheving eru m. a. í Listasafni íslands, Statens Museum for Kunst í Kaupmannahöfn, Nasjonalgalleriet, Osló, Nationalmuseum, Stokkhólmi, Colby College Art Museum, Maine, Bandaríkjunum og einnig í mörgum opinberum byggingum í Reykjavík.


Gunnlaugur Scheving

Höfundur
Ár
1970
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
28


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Gunnlaugur Scheving
http://baekur.is/bok/9e2598c4-4511-4491-9ff7-65e23e01b75d

Tengja á þessa síðu: (4) Blaðsíða [2]
http://baekur.is/bok/9e2598c4-4511-4491-9ff7-65e23e01b75d/0/4

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.