loading/hleð
(6) Blaðsíða [4] (6) Blaðsíða [4]
Gunnlaugur Scheving hó£ nám í málaralist árið 1923 þá 19 ára gamall og hefur síðan al- gjörlega helgað málaralistinni lí£ sitt. Flestar a£ elztu myndum hans eru glataðar, annað- hvort málaði hann y£ir þær eða þær urðu ónýtar í lélegum húsakynnum. Var þar fátækt Gunnlaugs um að kenna. Listamenn bjuggu þá margir við þröngan kost. Þeir vissu oft ekki frá degi til dags, hvort þeir gætu eignazt liti og léreft, eða mat til næsta máls, eða hvort þeir af efnisskorti þyrftu að skafa út fullgerðar myndir til að geta byrjað á nýju viðfangs- efni. Fólk keypti lítið sem ekkert af Gunnlaugi framan af. Myndir hans og nokkurra annarra málara voru sýndar í búðarglugga í Reykjavík sem ,,entartete Kunst“, svo að landslýður mætti sjá með eigin augum, hvað íslenzk list væri djúpt sokkin. Þrátt fyrir mikla andúð ráðamanna á list Gunnlaugs og ótrúlega erfiðleika gafst hann ekki upp. Tekjurnar voru nær engar, styrkir engir og sala takmörkuð. Nú fá færri en vilja málverk eftir Gunnlaug Scheving. Gunnlaugur byrjaði snemma að mála fiskimenn á sjó. fíassabáturinn frá 1929—1930 er fyrsta verk hans af sjómönnum, sem nú er til. Það sýnir tvo menn að leita síldar á sléttum sjó. Allt er rólegt. Láréttu línurnar eru yfirgnæfandi, ströndin, lygn sjávarflöturinn og báturinn, grænir lágir bakkar og tveir karlar, sem fara sér að engu óðslega. Glöggt má skvnja hina næmu tilfinningu í höndum nótabassans. Hér hefur Gunnlaugur strax fundið sitt eftirlætismótíf, þ. e. íslenzka fiskimenn á sjó. Og hann heldur áfram að mála sjömennina. Á árunum milli 1930 og 1940 eru þeir komnir út á rúmsjó. Þeir sigla út á miðin, leggja línu, draga línuna inn, taka inn baujuna og koma að landi á nóttu eða degi. Nú er kominn meiri þróttur í verkefnið, formið og litina. Formin orðin stærri og á- kveðnari og abstraktari.


Gunnlaugur Scheving

Höfundur
Ár
1970
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
28


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Gunnlaugur Scheving
http://baekur.is/bok/9e2598c4-4511-4491-9ff7-65e23e01b75d

Tengja á þessa síðu: (6) Blaðsíða [4]
http://baekur.is/bok/9e2598c4-4511-4491-9ff7-65e23e01b75d/0/6

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.