loading/hleð
(3) Blaðsíða 3 (3) Blaðsíða 3
ÁVARP Félag íslenzkra jrístundamálara var stofnaS 17. maí 1946, með 30 félög- um. Síðan hefur félagatala aukizt, svo að nú telur ftað 50 félagsmenn og konur. Frá stojnun félagsins hefur verið unnið að því að koma þessari fyrstu samsýningu frístundamálara á fót, en við marga örðugleika hefur verið að etja, bœði með útvegun á nægjanlega rúmgóðu húsnœði, svo og að margir sýnendur og félagsmenn eru búsettir víðsvegar um landið. Við val þeirra mynda, sem liér eru sýndar, skal það tekið fram, að um það hefur engin dómnefnd fjaliað, og engu, sem til sýningar kom verið vísað frá, heldur var til þess mœlzt í upphafi, að hver og einn sýndi það, sem liann áliti bezt gert, enda kemur á þann hátt bezt fram smekkur og geta hvers einstaklings. Höfuðmarkmið og tilgangur þessarar sýningar er að hvetja sem jlesta til þátttöku í myndagerð, í jullri vissu þess, að sú tómstundaiðja er bœði þroskandi og skemmtileg og getur orðið hagnýt, ef vel tekst. Föndur með pensil og liti glœðir einnig áhugann fyrir málaralistinni og eykur skilning á verkum listamannanna og verður til þess að gera mál- aralistina að meiri almenningseign en nú er. Það getur ekki hjá því farið að aukin skilningur almennings á viðfangsefnum og verkum Ustamann- anna, verði þeim stoð og hvatning í hinni menningarlegu baráttu, er þeir heyja fyrir land og þjóð. Þessi sýning á því ekki rœlur í fordild einni saman, heldur er hún að- eins einn þáttur í vaxandi starfsemi, sem vill vinna að auknum skilningi og vaxandi virðingu fyrir hinni ungu íslenzku málaralist. Enginn, er sýnir myndir sínar hér, telur sig vera listamann, því síður að krafa sé gerð til að aðrir telji að svo sé. Hér eru aðeins til sýnis tóm- stundaverk nokkurra manna og kvenna, úr öllum stéttum þjóðfélagsins, sett fram á sjónarsvið almennings með það eitt fyrir augum að hvetja aðra 3


Sýningarskrá

Höfundur
Ár
1947
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
8


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Sýningarskrá
http://baekur.is/bok/e63a4a9f-9585-4ff6-9424-bd2c694fbd32

Tengja á þessa síðu: (3) Blaðsíða 3
http://baekur.is/bok/e63a4a9f-9585-4ff6-9424-bd2c694fbd32/0/3

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.