Um vefinn

Árið 2010 var opnaður vefurinn bækur.is á vegum Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Stefnt er að því að þar birtist stafrænar endurgerðir íslenskra bóka frá upphafi prentunar til ársins 1900 og síðar. Nú þegar er búið að mynda allar íslenskar bækur í eigu Landsbókasafns fram til ársins 1844, þegar prentun fluttist til Reykjavíkur, og unnið er að myndun bóka sem hafa komið út um og eftir miðja 19. öld. Einnig hafa fjölmargar talsvert yngri bækur verið settar á vefinn með leyfi frá handhöfum höfundarréttar.
Markmiðið með bækur.is er að miðla íslenskri menningu með því að gera útgefið íslenskt efni innanlands og erlendis aðgengilegt á veraldarvefnum og þar með auka þjónustu við notendur með því að gera þeim kleift að nálgast efnið hvar og hvenær sem er. Mikilvægt markmið er einnig að tryggja langtímavarðveislu og forvörslu þeirra rita sem fara á vefinn með því að draga úr eftirspurn eftir frumeintökunum.

Heildarfjöldi myndaðra titla

2.987

Heildarfjöldi myndaðra binda

3.625

Heildarfjöldi myndaðra blaðsíðna

710.605

Fjöldi bóka frá hverjum áratug á Bækur.is