
(4) Blaðsíða [4]
Hann ávísar til útborgunar gjöldum þeim, er
félaginu ber að greiða.
11. gr.
Ritari bókar gerðir félagsins.
12. gr.
Gjaldkeri veitir móttöku öllum tekjum félags-
ins og greiðir reikninga þess eftir ávísun for-
manns. Semur hann ársreikning þess, er Ieggja
skal fram á aðalfundi endurskoðaðan.
13. gr.
Þá er fundur lögmætur er ^/3 félagsmanna
sækir fund og ræður þar afl atkvæða í öllum
málum. Lögum félagsins má þó ekki breyta
nema á aðalfundi. Nú óskar einhver félags-
maður lögunum breytt, skal hann þá að minsta
kosti 14 dögum fyrir aðalfund hafa afhent stjórn-
inni tillögur sínar þar að lútandi, en stjórnin
lætur þeirra getið i fundarboði fyrir aðalfund.
14. gr.
Nú þykir ráðlegt eða nauðsynlegt að leysa
upp félagið og fer þá um tillögur þar að lút-
andi sem um tillögur til lagabreytinga, en þó
verður því máli ekki ráðið til lykta nema á
fundi séu að minsta kosti 2/3 allra félagsmanna.
Yerði sá fundur ekki nægilega fjölmennur, rná
boða til fundar að nýju og nær málið þá fram
að ganga, ef meiri hluti fundarmanna samþykk-
ir. Fundur sá, sem samþykkir á löglegan hátt
að slíta félaginu, kveður og á um hvernig ráð-
stafa skuli eignum þess og um lúkning skulda.