(5) Blaðsíða [1]
y a r
uppá aðsenda grein í |>jóðólPi um Árrit prestaskólans.
(.Han orthograpliisk var”.
I 3>jóðólfi bls. 140—43 hefur einhver, sem kallar sig: Jeg, tekið fyrir sigaðleggja dóm áárrit
þaö, sem við nýlega höfum gefið út. í sjálfu sjer getur okkur ekkert þókt að því, heldur á-
lítum við það öldungis rjett og tilhlýðilegt, að dómar sjeu upp kveðnir yfir íslenzkum bókum,
sem birtast á prenti. En því nauðsynlegra er það hjer en annarstaðar, að slíkir dómar sjeu
byggðir á skynsemi og; saringirni, sem almenningur lijer er óvanari en annarstaðar við alla
þessháttar aðfinnzlú og mörgum lrættir því við að trúa því í blindni, sem þannig er sagt um
einhverja bók, hvort lieldur það er lof eða last, án þess að gjöra sjer far uin að vega ástæður
með og mót, einkanlega þegar dómurinn er laggður á með hroka og sjálfbyrgingsskap. 3>ess-
vegna höfum við ekki getaö leiðt bjá okkur að svara uppá grein þá um árritið, sem herra
„Jeg“ hefur sent Jijóðólfi til prentunar af því að við erum hræddir um, að hún kunni að villa
svo sjónir fyrir einhverjum, að þeir verði ekki varir við mótsagnirnar sem í henni eru, nje
geti að greint hið ranga frá liinu, sem kann að vera rjett í henni. Ef árrit prestaskólans
væri eingaungu ætlað lærðum mönnum og við ættum ekki tal við aðra en þá, þá væru þessi
orð: „Han orthographisk var“ nóg svar uppá greinina, því hún berþað sjálf með sjer, að hún
stefnir mestöll að orðum, bókstöfum og rjettritun, og ef menn ættu af henni að gjöra sjer
grein' fyrir, hverja menntun að höfundur hennar hafi til að bera, þá yrði hún helzt málfræðis-
leg, ef hún annars er nokkur; að minnsta kosti er auðsjeð, að höfundurinn þykist vera mál-
fræðingur, því reypdar talar liann alstaðar drembilega, en hvergi er hann eins digurmæltur og
um málfræðina, en hún virðist, að hans skoöun, helzt vera fólgin í rjettrituninni, svoað herra
„Jeg“ er þá auðsjáanlega ennþá í stafrofi málfræðinnar. En af því árritið er líka ætlað leik-
mönnum, sem sumir hverjir eiga, ef til vill, bágra með að skilja hið verulega fráhinu óveru-
lega í vísindalegum efnuin, þá verðuin við að taka grein höfundarins fyrir okkur og sýna,
hvernig henni er variö. J>að er þá fyrst, að hann byrjar á því að segja „að árritið birtist ári
siðar en menn vonuðust eptir upphaflega þegar boðsbrjefið koin út“. Jað er okkur óskiljanlegt,
hvernig hann fer að reikna; boðsbrjefið er skrifað í janúar-inánuði 1849 og í því lofað, að tek-
ið skyldi verða til að prenta árritið undireins og prentun alþingistiðindanna væri lokið; alþing-
ið stóð yfir fram í ágúst-mánuð í fyrra og síðan er enn ekki liðið heilt ár, en árritið þó komiö
út fyrir meir en mánuði síðan. J>að er því ekki nema tvennt til, annaðhvort að höfundurinn
hefur ætlast til, að prentun alþingistiðindanna yrði lokið áðuren alþingi byrjaði, eða þá aðhann
hefur árið styttra en allir aðrir og er hvorugt með öllu ósamkvæmt ályktunuin höfundarins og
sizt það að stytta svona fyrir sjer árið, af því að okkur finnzt honum vera mjög eginlegt að
hlaupa yfir allt á svo kölluðu huntlavaði, og að hann beri litil kennsli á hjegóma þarm, er
/7
1 UNö8«tíKA84f« ))