loading/hleð
(6) Page [4] (6) Page [4]
í skapgerð og fari Ásgríms Jónssonar voru margir þeirra þátta, sem þeir höfðu til að bera, er fyrr á öldum voru taldir helgir menn. Hann var alvörugeíinn trúmaður, sem bar hina dýpstu lotningu fyrir lífsundrinu, hann var einlægur mann- vinur, sem í raun og sannleika elskaði náungann eins og sjálfan sig, sannfæring hans var bjargföst og viljinn sterkur, en hjarta hans var hógvært og lítillátt, hann var framsækinn einstaklingshyggjumaður, af því að hann trúði á manninn og gildi hans, listamaður, af því að í brjósti hans brann sá logi, sem guð einn getur kveikt. Ríkisstjórnin hefur ákveðið, að hús Ásgríms Jónssonar við Bergsstaðastræti skuli varðveitt í því horfi, er hann skildi við það, bæði íbúð hans og vinnustofa. í þeim híbýlum er ekki rúm til þess að varðveita og sýna verk hans. En þegar lista- safn íslands verður reist, mun safni hans valinn veglegur stað- ur. Verður þess vonandi ekki langt að bíða, að þjóðin geti að staðaldri notið listar hans í slíkum salarkynnum. Hin dýrmæta gjöf ætti að verða Alþingi hvatning til þess að hefja þegar undirbúning þeirrar byggingar, og hefur ríkisstjórnin til athug- unar, með hverjum hætti framgangur þessa máls verði bezt tryggður. En. fábrotin híbýli Ásgríms Jónssonar munu líka varðveita minninguna um mikinn mann. Þeir, sem koma í hús hans, hljóta að íyllast lotningu andspænis látleysinu og íburðarleys- inu, mér liggur við að segja þægindaleysinu, sem einkennir þar alla hluti. Það væri hollur lærdómur sérhverjum íslenzk- um unglingi, gagnlegri en margar stundir á skólabekk, að koma í þetta hús og sjá, hverjar kröfur einn mesti snillingur þjóðar- innar gerði til ytra aðbúnaðar. Af því mætti íslenzk æska læra, að menn verða aðeins miklir af sjálfum sér, að öll hamingja kemur að innan, að mælikvarðinn á manninn er ekki sá íburð- ur, sem hann umvefur sig, heldur þau andlegu verðmæti, sem hann skapar. íslenzka þjóðin þakkar Ásgrími Jónssyni gjöfina, sem hann gaf henni. Meðan íslenzkt hjarta slær, mun minning hans lifa í þessu landi. Meðan íslenzk tunga er töluð, mun nafn hans lifa á vörum þessarar þjóðar. GYLFI Þ. GÍSLASON


Ásgrímur Jónsson 1876-1958

Author
Year
1959
Language
Icelandic
Pages
20


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Ásgrímur Jónsson 1876-1958
http://baekur.is/bok/0c27f5ff-497e-49a1-8476-ed7313df8f79

Link to this page: (6) Page [4]
http://baekur.is/bok/0c27f5ff-497e-49a1-8476-ed7313df8f79/0/6

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.