
(8) Blaðsíða 8
8
gjöra félaginu grein fyrir embættisbreytni
sinni, þegar félagiS beiðist eða hann skilur
viÖ embætti. Afhendíngar embættis fara fram
skriflega.
21.
Forseti skal sjá urn, að lögum þessum
sé hlýdt, og að sérhver félagsmanna gegni
skyldum sínum við félagið; hann kveður menn
til funda, setur þá og stýrir þeim; hann birtir
á fundum skrifleg frumvörp félagsmanna og
bréf til félagsins, og sérhvað annað, er hon-
um þurfa þykir, hann safnar atkvæðum og
segir upp úrskurði félagsmanna; hann skal
skýra á ársfundi hverjum frá athöfnum fé-
lagsins og fjárhag; svo skal hann og, ásamt
féhirði, sjá um sjóð félagsins sem óhultast
þykir og ábatamest; hann skal og gæta íjár-
heimtu og fjárútláta, og hafa ritað samþykki
sitt á sérhverja kröfu til félagsins, áður gjalda
megi; hann ráðstafar bókum til prentunar
með aðstoð skrifara og sér um bréfagjörðir
félagsins.
22.
Féhirðir skal taka viS inngjöldum fé-
lagsins, kvittera fyrir og hirba vandlega,
borga af þeim reiknínga þá er forseti hefir