(13) Page 13
SKOTTHÚFA
Heimilisiðnaðarfélag íslands. Kvenfélagasamband íslands. Þjóð-
dansafélag Reykjavíkur. Reykjavík 1974. Prentsmiðjan Edda hf.
Undanfarna áratugi hefur saumuð skotthúfa úr flaueli orðið algeng-
ast höfuðfat við íslenska þjóðbúninginn á kostnað prjónuðu skott-
húfunnar. Prjónahúfan hefur þó flesta kosti fram yfir flauelshúfuna.
Hún er fallegri í sjálfu sér, klæðilegri og hentugri. Konur, sem eiga
eða hafa í huga að koma sér upp íslenskum búningi, ættu því hiklaust
að taka prjónuðu húfuna fram yfir þá saumuðu. Það getur ekki talist
mikil þraut fyrir þann, sem hefur sæmilega sjón, að prjóna eina
skotthúfu. Þó að garnið sé fínt og prjónarnir grannir, er fatið svo
fjarska lítið að því verður lokið á fáeinum klukkustundum.
Hér fer á eftir uppskrift af prjónaðri skotthúfu. Efnið er fínt, þrinn-
að, svart garn, 15-20 g. Sokkaprjón nr. lj/2.
Fitja laust upp 220 1. á fjóra prjóna (55 1. á prjón). Prjóna áfram
slétt prjón 4% cm eða meira, ef húfan á að vera djúp. Þá er byrjað
að taka úr. Þess er gætt, að sem minnst beri á úrtökunni. Alltaf eru
teknar úr 4 lykkjur í einni úrtökuumferð, eða aðeins 1 lykkja á
hverjum prjóni. Urtökulykkjurnar mega ekki koma hver ofan við
aðra, heldur er þeim dreift eftir vissum reglum.
Urtökunni er hér skipt í fimm áfanga.
I. úrtaka:
1. umferð: 2 1. saman, 53 1. sléttar.
2. umferð: slétt án úrtöku.
3. umferð: 5 1. sl., 2 1. saman, 47 1. sl.
4. umferð: slétt án úrtöku.
5. umferð: 10 1. sl., 2 1. saman, 41 1. sl.
Þannig er haldið áfram. Með hverri umferð prjónað 5 lykkjum
meira að úrtökulykkjunum. Eftir hverja af fyrstu fjórum úrtöku-
umferðunum er prjónuð ein umferð án úrtöku, eftir það er tekið úr
í hverri umferð. Síðasta umferðin og sú 13. í þessum áfanga (9. úr-
tökuumferð) verður þá: 40 1. sl., 2 1. saman, 5 1. sl. (46 1. á prjóni).
II. úrtaka:
1. umferð: 2 1. saman, 44 1. sl.
2. umferð: 4 1. sl., 2 1. saman, 39 1. sl.
3. umferð: 8 1. sl., 2 1. saman, 34 1. sl. o. s. frv.
9. umferð: 32 1. sl., 2 1. saman, 4 1. sl. (37 1. á prjóni).
III. úrtaka:
1. umferð: 2 I. saman, 35 1. sl.
2. umferð: 3 1. sl., 2 1. saman, 31 1. sl.
3. umferð: 6 1. sl., 2 1. saman, 27 1. sl. o. s. frv.
9. umferð: 24 1. sl., 2 1. saman, 3 1. sl. (28 1. á prjóni).
IV. úrtaka:
1. umferð: 2 1. saman, 26 1. sl.
2. umferð: 2 1. sl., 2 1. saman, 23 1. sl.
3. umferð: 4 1. sl., 2 1. saman, 20 1. sl. o. s. frv.
9. umferð: 16 1. sl., 2 1. saman, 2 1. sl. (19 1. á prjóni).
V. úrtaka:
1. umferð: 2 1. saman, 17 1. sl.
2. umferð: 1 1. sl., 2 1. saman, 15 1. sl.
3. umferð: 2 1. sl., 2 1. saman, 13 1. sl. o. s. frv.
9. umferð: 8 1. sl., 2 1. saman, 1 1. sl. (10 1. á prjóni).
í næstu þrem umferðum er lykkjum fækkað í 7 lykkjur á prjón. Þá
er skottið prjónað jafnlangt húfunni, lykkjum aftur fækkað í 5 lykkj-
ur á prjón í tveim umferðum, 1 til 2 umferðir án úrtöku prjónaðar á
milli. Síðan er enn prjónað um IV2 cm. Fellt af. Saumaður inn örmjór
faldur, húfan pressuð og skottið teygt lítið eitt um leið. Þegar húf-
an er látin rísa að framan er dregið í blábrúnina og hún aðeins látin
hafast við á 8 til 10 cm bili. Hólknum er síðan smeygt upp á og
skúfur saumaður við skottið.