loading/hleð
(5) Blaðsíða 3 (5) Blaðsíða 3
3 kaupanda. Er svo sagt, að bankinn hafi, til þessa dags, engan arð haft af eigninni; hún hefir staðið í „eyði og tóm“, en fjöldi fólks í Hafnarfirði orðið af atvinnu, er það hefði fengið, ef sá maður hefði feng- ið eignina, er í hana bauð, því auðvitað ætlaði hann að hafa þar mikinn atvinnurekstur. Um þetta mál fer eg ekki fleiri orðum, en sný að öðru, sem er næsta tortryggilegt á fleiri en einn hátt, svo sem gerð mun verða grein fyrir nú og síðar, áður máli mínu er lokið. Nú fyrir nokkrum árum keypti verzlunarfélag, eða „firma“, hinn svonefnda Hæztakaupstað á Isafirði, er áður átti Tang kaupmaður. Ekki munu vörur hafa verið með í kaupunum, en hús, er þar voru, ásamt bryggju og stórri lóð. Kaupverðið er sagt að hafi ver- ið 76000 krónur. — Undanfarin ár hefir félag þetta rekið þama verzlun og fleira, þar á meðal aðgerðir á vélum. Keypti það til þess reksturs allmiklar vélar er það setti niður í húsum, er fylgt höfðu kaupi þess. Verzlun félagsins mun hafa gengið þunglega, en véla- verkstæðið borið sig allvel. — Hvað sem nú um þetta er, þá er það víst, að vetur er leið seldi félag þetta, fyrir milligöngu yfirvalds ísafjarðar, er áður var, hr. Hans Magnúsar Torfasonar, Isafjarðarkaupstað eign þessa fyrir 300000 — þrjú hundrað þúsund — krón- ur, en tók þó undan vélaverkstæðið, bæði vélarnar og hús þau, sem þær vora í, og skúra, er þar stóðu í kring, að sjálfsögðu ásamt lóðum undir byggingum þessum. — þessum kaupum réðu jafnaðarmenn á Isafirði; hafa þeir meiri hiuta bæjarstjórnar, og stýr- ir hún bænum samkvæmt kenningum kommúnista. Svo ber þeim kunnugum mönnum öllum, er eg hefi L


Landsbankinn og bolchevisminn

Ár
1923
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
18


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Landsbankinn og bolchevisminn
http://baekur.is/bok/90d1e3f8-d9e3-44a2-b897-8312d865df78

Tengja á þessa síðu: (5) Blaðsíða 3
http://baekur.is/bok/90d1e3f8-d9e3-44a2-b897-8312d865df78/0/5

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.