loading/hleð
(13) Blaðsíða [11] (13) Blaðsíða [11]
SIGURJÓN ÓLAFSSON (1908-1982) Sigurjón Ólafsson er fæddur á Eyrarbakka 21. október árið 1908. Hann fékk tilsögn hjá Ásgrími Jónssyni og Einari Jónssyni veturna 1922 og 1923. Hann lauk sveinsprófi í húsamálun við Iðnskólann í Reykjavík 1927, en hélt síðan utan til náms í höggmyndalist við Det Kongelige Akademi for de Skönne Kunster í Kaupmannahöfn og þar var hann frá 1928-35, og lauk burtfararprófi. Sigurjón dvaldist eitt ár í Róm 1930-31. Hann var búsettur í Kaupmanna- höfn fram til 1945. Sigurjón var sæmdur gullpeningi Listaakademíunnar í Kaupmannahöfn 1930 og Eckersbergs-heiðurspeningnum 1938. Sigurjón hefur tekið þátt í fjölda sýninga víða um lönd og eru verk hans í fjölmörgum söfnum, m. a. í Listasafni íslands, Statens Museum for Kunst í Kaupmannahöfn, í listasöfnum í Stokkhólmi, Osló, Árósum, Esbjerg, Louisiana - safninu í Humlebæk, Colby College Art Museum í Maine og í byggingu F.A.O. í Róm . Stórar granítmyndir eftir hann prýða Ráðhústorgið í Vejle í Danmörku. í Reykjavík eru margar höggmyndir eftir hann á opinberum stöðum. Yfirlitssýning var haldin á verkum hans í Listasafni íslands 1972.


Höggmyndir /

Ár
1983
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
24


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Höggmyndir /
http://baekur.is/bok/dd9446f3-918f-4bd8-af28-276c65250204

Tengja á þessa síðu: (13) Blaðsíða [11]
http://baekur.is/bok/dd9446f3-918f-4bd8-af28-276c65250204/0/13

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.