(12) Blaðsíða 12
12
í Kaupmannahöfn. |)eir sem gefa einn dal,
fá félagstíðindin ókeypis; hinir, sein gefa þrjá
dali, fá allar bækur félagsins sem prentaðar
verða; þo skulu þeir hafa goldið tillag sitt
í síðasta lagi innan ársloka, það ár sem bæk-
urnar koma út, enda sé ekki í skuldum við
félagið að undanförnu.
33.
Félagar skulu hafa goldið tillög sín fyrir
hver árslok; hafi þeir ekki goldið, skal
krefja þá bréflega; gjaldi þeir ekki á öðru
ári skal krefja þá enn bréflega, og ef þeir
hafa þá ekki goldið innan árs loka, skulu
þeir vera úr félaginu.
34.
Nú vill nokkur segja sig úr vorum fé-
lagskap, gefi það forseta bréflega lil vit-
undar, og skal hann lýsa því á samkomu,
en skrifari bókar það. Sá sem ekki hefir
sagt sig úr félaginu innan Júnímánafcar loka
greiði tillag sitt fyrir það ár.
35.
Félagsmenn skal kalla til fundar með
boðsbréfi, og skal í því segja aðalefni þeirra
mála sem forseti ber upp.