(13) Blaðsíða 13
13
36.
Aðalfundi eiga félagsdeildirnar þannig:
í Reykjavík tvisvar á ári, um kyndilmessu-
leyti og 8da dag Júlímánaðar eða næsta
virkan dag, en í Kaupmannahöfn ársfund
um kyndilinessu-Ieyti.
37.
Embættismenn skal kjósa á ársfundum;
en ársfundur er í Reykjavík á 8da dag
Júlímánaðar eða næsta virkan dag.
38.
Forseti kveður menn til fundar þegar
honum þóknast; en skyldur er hann til þess
þegar fimm eður fleiri beiðast.
39.
J)á er lögmætur fundur, þegar 9 eru
á fundi, þeirra sem atkvæði eiga.
40.
Á félagsfundum skal allt fara fram á
íslenzku; þó skal útlendum tnönnum svar-
að á þá túngu, er þeir skilja.
41.
Svo er um atkvæði, að afl skal ráða
með félagsmönnum; forseti ræður á hvern
hátt atkvæði sé gefin; atkvæði forseta sker
úr, þegar jafnmargir eru saman.