loading/hleð
(15) Page 9 (15) Page 9
Ghiimliildar-gaga. Fyrir nær 60 árum vildi sá atburður til í Dýraflrði, sem nú skal greina frá: Bræður tveir frá Sveinseýri voru ab slætti inni í Lambadal síðla sumars, var þar að vinnunni með þeim kvennmaður sá er Gunnhildur hét, og var hún þunguð. Einn dag lögðu þeir af stað til þess, að flytja heyið út að Sveinseyri og urðu heldur síðbúnir: var þá uppgangs- veður af útnorðri, en hjeldu þó öll áfram. Á leiðinni komu þau við á Þingeyri og hjet kaupmaður sá ér þar var þá, Thomsen. Bað hann þá bræður að vera kyrra, því veður var sít'elt að versna, og mennirnir ölvaðir orðDir. En þeir voru ófáanlegir til þess og fóru, hvað sem kaupmaður sagði. GunDhildur sat ofan á heyhlaðanum. Um kvö dið er þeir lentu við Svrinsevri var kcmið brim mikið, "g hefir þá skipið strax borið m> ð llötu. — Komust bræfurnir á land illa til reika og gátu bjargað iitlu af heyinu; hjeldu þeir síðan til bæjar og sögðu frá för sinni. Yar þá strax brugðið við og farið til sjávar. Lá skipið þá hálfbrotið í fjörunni, og heyið víðsvegar. Var þá farið að bjarga skipinu og heyinu, og að því loknu grenslast eftir Gunnhildi, því fóikið hugði í fyrstu, að hún hefði orðið eftir inn frá, en frásögn bræðranna var mjög ógreinileg. Var nú farið að leita hennar með sjónum og fanst hún við lind þá er rennur úr Sveinseyrartjörninni; var hún svo borin í trogbörum inn í naustið, og eigi sprett af henni klæðum; var hún látin liggja svo um nóttina. En eigi hefir kerling lengi kyr legið, því seint um kvöldið sást svipur hennar i Haukadal. Var eigi frétt þangað um slysið; hjelt því konan er sá hana að hún væri lifandi, og segir við hana: „Hvað ertu nú að fara, Gunna jnín?“ — Eigi urðu heunar fleiri varir, þá.


Vestfirzkar þjóðsögur

Year
1909
Language
Icelandic
Pages
44


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Vestfirzkar þjóðsögur
https://baekur.is/bok/73ec1c38-5810-4e58-b22b-dbb86af69e1c

Link to this page: (15) Page 9
https://baekur.is/bok/73ec1c38-5810-4e58-b22b-dbb86af69e1c/0/15

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.