loading/hleð
(29) Page 23 (29) Page 23
Fjtfrulalli. (Eftir sögn Kristjáns Oddssonar á ísafirði). Eitt sinn var eg á ferð frá Hvestu og út aö Hringsdal í Arnarfirði, og var fyrir nokkuru dagsett orðið. Þegar eg kom út fyrir svonefnda Rauðsvík sá eg eitthvert dýr þar í fjörunni mógrátt að lit, lágt að framan en hátt að aftan; hálsinn var fremur stuttur og fæturnir mjög lubbalegir. Dýrið var á stærð við væna kind. — Heldur það út með sjónum, en eg gekk uppi á bökkunum og fylgdumst við svo að út undir Hringsdal. Hvarf þá dýrið mjer, en þar eru mjög háir bakkar, sem skyggja á fjöruna, og vissi eg þvi eigi, hvað af dýrinu varð. Stundum tók dýrið harða spretti, og voru tilburðir þess mjög líkir þvi, er köttur stekkur á mús, en eigi tók það lengri spretti í einu, en 6—8 faðma. Staðnæmdist það þá og fór að snuðra í þaranum. í þetta sinn var hvitalogn og tunglskin; sá eg því greinilega að þetta var ekki kind, enda var engum kindum til að dreifa, og er eg viss um, að þetta var óþekt dýr. Bar lýsing mín saman við það er aðrir sögðu, sem höfðu sjeð fjörulalla. Fjörulalli hefir oft sjest víðsvegar við Arnarfjörð, oger álitið að það sje undan vondum veðrum. Eigi gjörði hann mjer ueitt mein, en konur kvað hann oft hafa leikið grátt.


Vestfirzkar þjóðsögur

Year
1909
Language
Icelandic
Pages
44


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Vestfirzkar þjóðsögur
https://baekur.is/bok/73ec1c38-5810-4e58-b22b-dbb86af69e1c

Link to this page: (29) Page 23
https://baekur.is/bok/73ec1c38-5810-4e58-b22b-dbb86af69e1c/0/29

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.