(14) Page 12
Skátafélagið Faxi var stofnað 22. febrúar
1938. Á þessu 10 ára afmæli minnumst við
ótal skemmtilegra, og að því er okkur finnst,
merkilegra atburða úr 10 ára skátastarfi. Hér
á eftir í þessum annál verður drepið á helztu
atburði liðinna ára. Við samningu annáls
þessa, höfum við haft það eitt fyrir augum,
að hann gæfi sem gleggsta mynd af hinu
umfan'gsmikla starfi félagsins. Höfum við
því einungis tekið það með, sem okkur þótti
markverðast eða á einhvern máta sérstætt,
en sleppt hinu, sem ætla má, að ekki sé
mönnum eins minnisstætt og því færri end-
urminningar tengdar við.
Takið ykkur þetta blað í hönd. Flettið
upp annálnum og lesið hann yfir í góðu
tómi. Látið hugann reika aftur í tímann til
liðinna ára og lifið ykkur inn í heim endur-
minninganna. Þið munið eftir byrjunarörð-
ugleikunum, þegar verið var að safna í
flokkssjóðinn. Þið minnist þess, er þið sátuð
á flokksfundum og „hnýttuð á,“ bjugguð til
kúlupoka eða svitnuðuð við að sauma fyrsta
flokkstjaldið. Þið munið eftir deginum, er
þið fóruð út í fyrsta sinn í nýja búningnum
og trítluðuð feimnir eftir götum bæjarins.
Þið minnist einnig dagsins, þegar þið hreins-
uðuð Strembuhelli og hlóðuð Hvíldarvörð-
una veturinn 1939. Ekki eruð þið heldur
búnir að gleyma útilegunni „frægu“ í Lyng-
fellisdal sumarið 1939. Eða munið þið eftir
afmælisfagnaðinum 22. des. 1940 og hvað
þið voruð hreiknir, þegar þið löbbuðuð upp
að Breiðabliki og leidduð dömuna ykkar
undir hönd? Þið munið einnig áreiðanlega
eftir öllum ánægjustundumun, þegar við
unnum að viðgerð skálans okkar sumrin 1942
og 1943. Þannig mætti lengi telja, en nú skul-
um við ekki tefja lengur, heldur snúa okkur
st-rax að sjálfum annálnum. Við kveðjum
stund og stað. Lítum um öxl og liöldum til
baka, unz hugurinn nemur staðar við árið:
1938
Fimmtudaginn 22. febrúar er skátafélagið
Faxi stofnað. 1 fyrstu stjórn þess voru: Frið-
rik Jesson félagsforingi, Leifur Eyjólfsson
ritari, Lárus Einarsson gjaldkeri, Sigurjón
Kristinsson og Jón óli.
Fyrr um veturinn liöfðu nokkrir drengir
úr efstu bekkjum Barnaskólans ásamt piltum
úr Gagnfræðaskólanum notið tilsagnar og
leiðbeiningar Jóns Oddgeirs Jónssonar í
ýmsum skátafræðum, enda var hann aðal-
hvatamaður að stofnun félagsins. Til gamans
birtum við hér fyrstu fundargerð féagsins
orðrétta:
„Fimmtudaginn 22. febrúar 1938 var hald-
inn stofnfundur skátafélags í Vestmannaeyj-
um, kl. 5 e. li. í leikfimisal Barnaskólans.
Það lielzta, sem gerðist á fundinum, var:
1. Gengið var undir íslenzka fánanum, og
því næst fóru skátaefnin með skátaheitið, og
Friðrik Jesson félagsforingi talaði um skáta-
störf og hvernig skátum ber að liaga sér.
2. Bætt um nafn á félagið. Var það ákveð-
ið skátafélagið Faxi. Þá var minnzt á hús-
næðismál félagsins, en það látið bíða næsta
fundar til frekari úrlausnar.
Stofnendur félagsins eru 24 drengir á
aldrinum 12—14 ára. Félagið er í 3 flokkum,
8 skátar í hverjum. Rætt var á nöfn flokk-
anna og varð niðurstaðan sú, að 1. fl. lieitir
„Gammar," fl.for. Leifur Eyjólfsson, 2. fl.
„Ernir,“ fl.for. Jón Óli og 3. fl. „Þrestir,"
fl.for. Sigurjón Kristinsson.
Fleira var ekki tekið fyrir. Fundi slitið
kl. 6 e. h.“ Leifur Eyjólfsson, ritari.
Þann 2. marz hélt svo félagið annan fund
sinn. Var þar meðal annars rætt um lands-
mót skáta á Þingvöllum næsta sumar. Þann
20. des. var tekinn inn fyrsti nýliðahópur-
inn, 30 drengir.
12
(1) Front Cover
(2) Front Cover
(3) Page 1
(4) Page 2
(5) Page 3
(6) Page 4
(7) Page 5
(8) Page 6
(9) Page 7
(10) Page 8
(11) Page 9
(12) Page 10
(13) Page 11
(14) Page 12
(15) Page 13
(16) Page 14
(17) Page 15
(18) Page 16
(19) Page 17
(20) Page 18
(21) Page 19
(22) Page 20
(23) Page 21
(24) Page 22
(25) Page 23
(26) Page 24
(27) Page 25
(28) Page 26
(29) Page 27
(30) Page 28
(31) Page 29
(32) Page 30
(33) Page 31
(34) Page 32
(35) Back Cover
(36) Back Cover
(2) Front Cover
(3) Page 1
(4) Page 2
(5) Page 3
(6) Page 4
(7) Page 5
(8) Page 6
(9) Page 7
(10) Page 8
(11) Page 9
(12) Page 10
(13) Page 11
(14) Page 12
(15) Page 13
(16) Page 14
(17) Page 15
(18) Page 16
(19) Page 17
(20) Page 18
(21) Page 19
(22) Page 20
(23) Page 21
(24) Page 22
(25) Page 23
(26) Page 24
(27) Page 25
(28) Page 26
(29) Page 27
(30) Page 28
(31) Page 29
(32) Page 30
(33) Page 31
(34) Page 32
(35) Back Cover
(36) Back Cover