(7) Blaðsíða [5]
Nafn Jóns Þorleifssonar listmálara mun bera hátt í íslenskri myndlist og
íslenskri myndlistarsögu. Jón var ekki aðeins góður málari og afkastamikill
á sviði málaralistar; hann var einnig brautryðjandi í félagsmálum og öðrum
hugðarefnum myndlistarmanna. Hann var bæði áhugasamur og fórnfús og
óþreytandi í því að örva og styrkja íslenska myndlist, hafði brennandi áhuga
á framgangi hennar og að hún næði til fólksins í landinu.
Jón gerðist listgagnrýnandi Morgunblaðsins fljótlega eftir að hann kom
heim frá námi og skrifaði undir nafninu Orri um sérhverja sýningu, sem hér
var haldin. Hann gat verið óvæginn í dómum sínum, ef honum þótti eitthvað
miður fara, en mjög jákvæður og hvetjandi í garð þeirra listamanna, sem
honum fannst mikið í spunnið.
Jón málaði aldrei abstrakt sjálfur, en sá og mat list að verðleikum óháð stíl
og stefnu. Má þar nefna grein hans um fyrstu sýningu Svavars Guðnasonar
hér heima haustið 1945, en þá sýningu lofaði Jón mjög. Þeirri sýningu átti
margur hér bágt með að kyngja, þar sem þarna voru aðeins abstrakt verk.
Afstaða Jóns Þorleifssonar til þessarar sýningar dró athygli þjóðarinnar að
þeim tímamótum, sem list Svavars markaði í íslenskri myndlist. Sama má
segja um grein hans um sýningu Þorvalds Skúlasonar 1938, en þar voru á
ferðinni myndir svo nýstárlegar, að fæstir íslendingar höfðu slíkt áður
augum litið.
Jón var aðalhvatamaður að byggingu Listamannaskálans í Reykjavík og
lagði aleigu sína að veði til að reisa þá byggingu. íslenskir listamenn fengu
þarna fyrst myndarlegan sýningarsal til að koma verkum sínum og starfs-
bræðra sinna erlendis á framfæri.
Jón lét sér ekki nægja að fá rúmgóðan sýningarsal fyrir listamenn að sýna í
nýsköpuð verk sín, hann hafði brennandi áhuga á, að Listasafn íslands
fengi veglegan samastað, en safnið hafði þá verið á hrakhólum í nær 60 ár.
Barátta hans og fleiri góðra manna varð til þess að safninu var úthlutað
(1) Kápa
(2) Kápa
(3) Blaðsíða [1]
(4) Blaðsíða [2]
(5) Blaðsíða [3]
(6) Blaðsíða [4]
(7) Blaðsíða [5]
(8) Blaðsíða [6]
(9) Blaðsíða [7]
(10) Blaðsíða [8]
(11) Blaðsíða [9]
(12) Blaðsíða [10]
(13) Blaðsíða [11]
(14) Blaðsíða [12]
(15) Blaðsíða [13]
(16) Blaðsíða [14]
(17) Blaðsíða [15]
(18) Blaðsíða [16]
(19) Blaðsíða [17]
(20) Blaðsíða [18]
(21) Blaðsíða [19]
(22) Blaðsíða [20]
(23) Blaðsíða [21]
(24) Blaðsíða [22]
(25) Blaðsíða [23]
(26) Blaðsíða [24]
(27) Kápa
(28) Kápa
(29) Kvarði
(30) Litaspjald
(2) Kápa
(3) Blaðsíða [1]
(4) Blaðsíða [2]
(5) Blaðsíða [3]
(6) Blaðsíða [4]
(7) Blaðsíða [5]
(8) Blaðsíða [6]
(9) Blaðsíða [7]
(10) Blaðsíða [8]
(11) Blaðsíða [9]
(12) Blaðsíða [10]
(13) Blaðsíða [11]
(14) Blaðsíða [12]
(15) Blaðsíða [13]
(16) Blaðsíða [14]
(17) Blaðsíða [15]
(18) Blaðsíða [16]
(19) Blaðsíða [17]
(20) Blaðsíða [18]
(21) Blaðsíða [19]
(22) Blaðsíða [20]
(23) Blaðsíða [21]
(24) Blaðsíða [22]
(25) Blaðsíða [23]
(26) Blaðsíða [24]
(27) Kápa
(28) Kápa
(29) Kvarði
(30) Litaspjald