(11) Blaðsíða 11
11
27.
Heiðursfélaga skal kjósa eptir verðug-
leikum; sé þeir réttir félagar, eiga þeir at-
kvæðisrétt. Heiðursfélagar borga ekki tillag
framar en sjálfír vilja.
28.
Félagar einir hafa atkvæðisorð á félags-
fundum.
29.
Aukafélagar eru þeir, sem hvorki tala
né rita íslenzku; eru þeir kosnir að ment-
un til og félaginu til sóma, en ekki hafa
þeir atkvæðisorð á félagsfundum.
30.
Bréfafélaga kýs félagið þá er það vill;
þeir gjalda því ekki.
31.
Allir félagsmenn mega bera upp á
fundum það er þeim þykir þarft að hugleiða,
en allajafna ræður forseti, hvort til atkvæða
má gánga um slíka uppástúngu fyrr en á
öðrum fundi.
32.
f)eir er gjörast vilja félagsmenn beiðist
þess skriflega, og ákveði um leið hve mik-
inn styrk þeir ætla að veita félaginu. Minnst-
ur tillagseyrir er á íslandi l rd., en 3 rdd.