(10) Page [8] (10) Page [8]
Finnur Jónsson er fæddur að Strýtu í Hamarsfirði 15. nóv. 1892. Hann lauk sveins* prófi í gullsmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík 1919. A árinu 1919—1920 stundaði hann nám við Teknisk Skole í Kaupmannahöfn og einkaskóla Viggo Brandt.1920— 1921 var hann nemandi við einkaskóla Olav Rude. Haustið 1921 hóf hann nám við einkaskóla Carl Hoffer í Berlín, en hélt síðan til Dresden í ársbyrjun 1922, og stundaði um skeið nám við útlendingadeild Listaháskólans þar, og var m. a. kennari hans Oskar Kokoschka, en síðar fram til ársins 1925 við „Der Weg, neue Schule fur Kunst". Finnur Jónsson hélt sína fyrstu einkasýningu í Reykjavík 1921 og hefur síðan haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum bæði hér heima og erlendis. Má þar nefna þátttöku í sýningu Der Sturm-hópsins 1925, heimssýningunni í New York 1940 og „Evrópa 1925" í Strasbourg 1970. Finnur Jónsson rak myndlistarskóla í Reykjavík ásamt Jóhanni Briem á árun- um 1934—1940 og var teiknikennari við Menntaskólann í Reykjavík 1934—1950. Finnur Jónsson hefur tekið virkan þátt í félagssamtökum myndlistarmanna. Hann var formaður Listvinafélagsins um skeið, einn af stofnendum Félags íslenskra mynd- listarmanna og átti sæti í stjórn þess um langt árabil. Hann var einn af stofnendum Félags óháðra myndlistarmanna og Myndlistarfélagsins. Finni Jónssyni hefur hlotnast margvísleg viðurkenning fyrir list sína og má nefna að hann er heiðursfélagi í „Academia Internationale" (Tammaso Campanella) í Róm, heiðursfélagi Félags íslenskra myndlistarmanna, hlaut „Förste premia" á Listahátíð Norður-Noregs 1971, hafa verið veitt heiðursverðlaun frá Alþingi síðan 1973 og var sæmdur stórriddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir myndlistar- störf 1976.


Finnur Jónsson

Year
1976
Language
Icelandic
Pages
32


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Finnur Jónsson
https://baekur.is/bok/0b502232-db02-40c3-980a-ae4342834e6d

Link to this page: (10) Page [8]
https://baekur.is/bok/0b502232-db02-40c3-980a-ae4342834e6d/0/10

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.