
(6) Page [4]
stefnuyfirlýsingar og vörðust einnig árásum afturhaldssinna á hina nýju list. Ein
þessara samtaka voru Sturm-samtökin, stofnuð 1910. Þau voru geysiáhrifamikil
einnig á eftirstríðsárunum. Þau héldu úti vikuritinu Der Sturm og höfðu eigin
sýningarsali í Berlín. Hinn framsýni og dugmikli formaður þeirra, Herwarth Walden,
safnaði í kringum sig mörgum helstu forsprökkum abstraktlistar, svo sem Vasili
Kandinsky, Kurt Schwitters o. fl. Verk þessara framúrstefnumanna voru sýnd í
sýningarsölum samtakanna í Berlín og síðar send til margra borga á meginlandi
Evrópu. Das Bauhaus varð þekktast allra þeirra mörgu samtaka avant-garde-lista-
manna, sem risu upp á þessum árum. Þessi samtök voru stofnuð í Weimar árið 1919
af arkitektinum Walter Gropius og voru margir listamannanna úr Sturm-sam-
tökunum aðilar að stofnun þeirra. Meðal kennara þar voru Vasili Kandinsky og
Paul Klee. Das Bauhaus var skóli og bauð upp á allar greinar sjónmennta og
hagnýtrar listar, og varð mjög áhrifaríkur og stefnumarkandi.
Dresden var ein þeirra borga í Þýskalandi, þar sem framúrstefnumenn létu til
sín taka. Þessir menn voru í nánum tengslum við Bauhaus. Til Dresden hélt
Finnur Jónsson eftir 6 mánaða dvöl í Berlín og var fyrsti kennari hans þar austur-
ríkismaðurinn Oskar Kokoschka, einn aðal-expressjónisti þess tíma. Síðar innritaðist
Finnur í einkaskóla Der Weg. Skólastjóri hans var listmálarinn Edmund Kesting.
Weg-skólinn var í nánum tengslum við Bauhaus og hefur það að sjálfsögðu haft
mikil áhrif á kennslu og viðhorf nemenda Weg-skólans og yfirleitt á list framúr-
stefnumanna í Dresden. Bauhaus-skólinn virðist hafa haft mikil áhrif á list Finns
Jónssonar á árunum 1922 —1925, verk hans verða meira abstrakt, áhrif expressjón-
ismans viku um sinn fyrir hreinni abstraksjón.
Vorið 1925 tók Finnur sér ferð á hendur til Berlínar með nokkur verka sinna,
með það fyrir augum að koma þeim á framfæri hjá Sturm-samtökunum. Þau
höfðu þá fyrirhugað listsýningu í sýningarsölum sínum í Berlín, sem opna átti
í maí 1925. Sturm-félagarnir tóku átta verk eftir Finn Jónsson á sýninguna, þar
af fjögur olíumálverk. Meðal annarra listamanna, sem áttu verk á þessari sýningu,
voru rússarnir Vasili Kandinsky og Alexander Archipenko, frakkarnir Albert
Gleizes og Raymond Duchamp-Villon, þjóðverjinn Kurt Schwitters, pólverjinn Rud-
(1) Front Cover
(2) Front Cover
(3) Page [1]
(4) Page [2]
(5) Page [3]
(6) Page [4]
(7) Page [5]
(8) Page [6]
(9) Page [7]
(10) Page [8]
(11) Page [9]
(12) Page [10]
(13) Page [11]
(14) Page [12]
(15) Page [13]
(16) Page [14]
(17) Page [15]
(18) Page [16]
(19) Page [17]
(20) Page [18]
(21) Page [19]
(22) Page [20]
(23) Page [21]
(24) Page [22]
(25) Page [23]
(26) Page [24]
(27) Page [25]
(28) Page [26]
(29) Page [27]
(30) Page [28]
(31) Back Cover
(32) Back Cover
(33) Scale
(34) Color Palette
(2) Front Cover
(3) Page [1]
(4) Page [2]
(5) Page [3]
(6) Page [4]
(7) Page [5]
(8) Page [6]
(9) Page [7]
(10) Page [8]
(11) Page [9]
(12) Page [10]
(13) Page [11]
(14) Page [12]
(15) Page [13]
(16) Page [14]
(17) Page [15]
(18) Page [16]
(19) Page [17]
(20) Page [18]
(21) Page [19]
(22) Page [20]
(23) Page [21]
(24) Page [22]
(25) Page [23]
(26) Page [24]
(27) Page [25]
(28) Page [26]
(29) Page [27]
(30) Page [28]
(31) Back Cover
(32) Back Cover
(33) Scale
(34) Color Palette