(20) Page 18
18
Haraldur Sigurðsson
pendiee de la l & II parties du Théatre du
Monde. Það er eftirmynd af korti Janssoniusar
sem er nokkrum árum eldra og birt í öllum
útgáfum af kortasafni Blaeus uns yfir lauk um
1670. Að stofni til er kortið gert eftir Norður-
vegakorti Gerhards Mercators frá 1595, en
leiðrétt og aukið eftir því sem landkönnunum
vatt fram.
Björn Gunnlaugsson. Uppdráttr íslands.
Gjörðr að fyrirsögn Ólafs Nikolas Olsens
eptir landmælingum Bjarnar Gunnlaugs-
sonar. Gefinn út af Enu íslenzka bók-
menntafélagi 1849 (55.5X68.7 sm talið með
lesmáli á jöðrum, en kortið sjálft 41X54.5
sm).
Auk íslenska heitisins er nafn þess á frönsku:
Carte d’Islande o. s. frv.
Þegar landmælingum Bjöms Gunnlaugs-
sonar var lokið og búið að gefa út hið stóra kort
hans (í fjórum blöðum) 1848, þótti við hæfi að
gera minnkaða gerð þess, handhægari og
ódýrari til almennra nota. Stóra kortið var
nokkuð dýrt, ef miðað er við gildi peninga á
þeim árum.
Myndamót kortanna voru lengi varðveitt og
kortið prentað að nýju eftir því sem gekk á fyrri
upplög. Vék svo lengi fram, uns myndamót-
unum var að lokum stolið í fyrri heimsstyrj-
öldinni. Málmur var þá í háu verði og eftir-
sóttur.
Bowen, Emanuel. An Jmproved Map of
Iceland (9.3 X 14 cm).
Emanuel Bowen var fyrst og fremst eirstungu-
maður, sem gerði myndamót korta fyrir bæði
Frakka og Englendinga, og eru kort hans flest
frá árunum upp úr 1750.
Á sama blaði og íslandskortið eru tvö önnur
kort. Annað er af Grænlandi, gert eftir kortum,
sem fylgdu bók Egedes um landið, hitt af
Færeyjum eftir nærri aldargömlu korti Lucas
Jacobsen Debes.
Carolus, Joris. Tabula Islandiæ. Auctore
Georgio Carolo Flandro, s. a. (27.4X48.4
sm).
Höfundur korts þessa, Joris Carolus, sneri
nafni sínu oft til latneskra hátta og kenndi sig
gjama við ættstöðvar sínar í Flæmingjalandi.
Hann var siglingamaður og landkönnuður, og
lágu leiðir hans víða um Norðurhöf, til Spits-
bergen og vestur fyrir Grænland. Hann dvald-
ist eitthvað á Islandi og kynntist Jóni lærða
Guðmundssyni, sem kallar hann Júris tréfót,
því að Carolus hafði misst fót í orustu. Is-
landskort hans er í megindráttum gert eftir
korti Mercators með ýmsum lagfæringum og
íaukum, sumum hæpnum eins og t. a. m.
Gunnbjamareyjum úti fyrir mynni ísafjarðar-
djúps.
Kort Carolusar er til í tveimur ofurlítið mis-
munandi gerðum og birtist þannig í fjölmörg-
um útgáfum í kortasöfnum þeirra Blaeus og
Janssoniusar á árunum 1630—1670, en þá
vesluðust bæði þessi útgáfufyrirtæki upp og
myndamótin lentu á flækingi. Islandskortið
var þó prentað nokkrum sinnum enn eða fram
yfir aldamótin 1700 og birt í ýmsum samtín-
ingssöfnum.
[Carolus, Joris]. Novissima Islandiæ tabula.
Sumptibus Janssonio-Waesbergiorum,
Mosis Pitt et Stephani Swart, s.a. (37.3X49
sm).
Kortið er prentað eftir sama myndamóti, en
með nýrri umgerð og titilfeldi. Þegar hinir
upphaflegu útgefendur Joris Carolusar-
kortsins voru úr sögunni um 1670, voru
myndamótin seld ýmsum, meðal annars til
Englands. Þar var fyrirhuguð útgáfa af miklu
kortasafni 1680. Útgáfan komst í fjárþrot, og
myndamótin bárust aftur til Hollands. Kort
þetta mun vera úr kortasafni Carel Allards,
sem birtist í ýmsum gerðum á árunum upp úr
aldamótunum 1700.
De Islanda Insvla (26 X 18.9 sm).
Kort þetta er til í að minnsta kosti fjórum dá-
lítið mismunandi gerðum. Það er sniðið eftir
Norðurlandakorti Olaus Magnus, sem gefið
var út í Feneyjum 1539. Helsta breytingin frá
korti Olaus er sú, að landinu er snúið til. Hjá
Olaus er lengdaröxull þess frá suðvestri til
norðausturs, en hér er hann h. u. b. frá norðri
til suðurs.
Tveir af höfundum þessara korta nafngreina
sig: Ferando (eða Femando) Bertelli (1566) og
Giovanni Camoccio (kortið er ártalslaust).
Hinar gerðimar eru án höfundamafns.
(1) Front Cover
(2) Front Cover
(3) Page 1
(4) Page 2
(5) Page 3
(6) Page 4
(7) Page 5
(8) Page 6
(9) Page 7
(10) Page 8
(11) Page 9
(12) Page 10
(13) Page 11
(14) Page 12
(15) Page 13
(16) Page 14
(17) Page 15
(18) Page 16
(19) Page 17
(20) Page 18
(21) Page 19
(22) Page 20
(23) Page 21
(24) Page 22
(25) Page 23
(26) Page 24
(27) Back Cover
(28) Back Cover
(29) Scale
(30) Color Palette
(2) Front Cover
(3) Page 1
(4) Page 2
(5) Page 3
(6) Page 4
(7) Page 5
(8) Page 6
(9) Page 7
(10) Page 8
(11) Page 9
(12) Page 10
(13) Page 11
(14) Page 12
(15) Page 13
(16) Page 14
(17) Page 15
(18) Page 16
(19) Page 17
(20) Page 18
(21) Page 19
(22) Page 20
(23) Page 21
(24) Page 22
(25) Page 23
(26) Page 24
(27) Back Cover
(28) Back Cover
(29) Scale
(30) Color Palette