(24) Page 22
22
Haraldur Sigurðsson
Kort þetta er gert eftir Zeno-kortinu, sem
kom út 1558, en það var falskort og hinn
furðulegasti samsetningur.
Kort Porcacchis birtist fyrst í Feneyjum
1572, en bókin var endurprentuð nokkrum
sinnum með kortunum óbreyttum. Nafn bók-
arinnar er L’isolepiv famose del mondo.
Reilly, Franz Johann Joseph von. Die Insel
Island No: 76 (23X27.2 sm).
Kortið er birt í kortasafni von Reillys, sem
gefiðvar útí Vinarborgáárunum 1789—1791 í
þremur bindum: Schauplatz derfiinf Theileder
Welt ... Nach und zu Biischings grosser Erd-
beschreibung. Kortin eru felld að landafræði
Búschings, eins kunnasta landfræðings álf-
unnar á síðara hluta 18. aldar. Kortið er gert
eftir Knoffs-kortinu 1761 án tillits til síðari
lagfæringa.
Reinecke, I. C. M. Doppel-Charte von Is-
land nach álterer Charten und neueren
Ortsbestimmungen entworfen (Weimar
1800. 16X21.4 sm).
Strandlengjan samkvæmt Knoffs-kortunum er
mörkuð svartri línu, er inn í myndina er dregin
íslandsgerð Verdun de la Crennes í grænum
lit. Reinecke gerði einnig Islandskort, sem var
stærra í sniði, þar sem útlínur landsins eru
dregnar eftir Verdun de la Crenne, en markað
til byggða og landshluta eftir korti af Knoffs-
gerð.
Le Royaume d’Islande (11.8X 17.4 sm).
Kortið er gert eftir loftmyndum teknum árin
1937—1938, sennilega á vegum Landmæling-
anna dönsku, en þær unnu um þessar mundir
að loftmyndagerð á Islandi.
Tardieu [Pierre Franqots?]. Royaume de
Danemark. Premier Carte. Danemark,
Norwegen et Islande (33.2X43 sm).
Á síðara hluta 18. aldar og öndverðri 19. öld
voru uppi á Frakklandi nokkrir kortagerðar-
menn, sem báru ættarnafnið Tardieu. Pierre
Franqois gerði t. a. m. kortin í alfræðibók
Diderots. Að svo stöddu eru ekki tök á að
ganga úr skugga um, hver þeirra sé höfundur
þessa korts.
Thomson, John. Denmark. Drawn & En-
graved for Thomson’s New General Atlas
(50X59.2 sm).
I efra homi kortsins til vinstri er íaukakort af
íslandi: Iceland (14.5X19.6 sm). Kortið er af
Knoffs-gerð. lohn Thomson var skoskur
kortaútgefandi í Edinborg. Meðal annars gaf
hann út kortasafn, New General Atlas, í fjórum
útg. á árunum 1814—1828, og úr einhverri
þeirra er umrætt kort.
Thoroddsen, Þorvaldur. Geological Map of
Iceland by Th. Thoroddsen. Surveyed in the
years 1881—1898. Edited by the Carlsberg
Fund (Copenhagen) 1901. Scale 1:600000
(67X95.2 sm).
Þetta er hin fyrri og betri útgáfa af jarðfræði-
korti Þorvalds. Kortið var síðar gefið út í
nokkuð endurskoðaðri útgáfu í Gotha 1906, en
sú gerð þótti misheppnuð.
Van der Aa, Pieter. D. Blefkenius Scheeps-
Togt gedaan na Ysland en Kusten van
Groenland. Vytgevoerd te Leyden door
Pieter van der Aa (15.3 X 23.5 sm).
Kortið birtist fyrst í útgáfu Van der Aa á
ferðasögu Blefkens, Scheeps-Togt na Ysland en
Groenland gedaan door Dithmar Blefkenius,
sem kom út í Leiden 1706 og var endurprentuð
1727. Kortið var einnig tekið upp í ýmis
kortasöfn, sem Van der Aa gaf út á tveimur
fyrstu tugum 18. aldar.
Van der Aa, Pieter. Islande. A Leide chez
Pierre van der Aa. Avec privilege (23X39.3
sm).
Útgefandi kortsins er bókaútgefandinn Pieter
van der Aa, en frá hans hendi er mikill fjöldi
kortasafna, einkum frá fyrstu tveim áratugum
18. aldar. Flest eru kortasöfn þessi ártalslausog
því illt að átta sig á þeim, auk þess, sem þau eru
mjög mismunandi að kortafjölda, og sum
þeirra prentuð hvað eftir annað eftir sömu
myndamótum. Kortið kemur sennilega fyrst
fyrir í kortasafni á frönsku: L’Atlas, Soulange
de son gros & pesant fardeau: ou Nouvelles car-
tes geographiques, ártalslaust, en einhvem tíma
frá árunum kringum 1710.
(1) Front Cover
(2) Front Cover
(3) Page 1
(4) Page 2
(5) Page 3
(6) Page 4
(7) Page 5
(8) Page 6
(9) Page 7
(10) Page 8
(11) Page 9
(12) Page 10
(13) Page 11
(14) Page 12
(15) Page 13
(16) Page 14
(17) Page 15
(18) Page 16
(19) Page 17
(20) Page 18
(21) Page 19
(22) Page 20
(23) Page 21
(24) Page 22
(25) Page 23
(26) Page 24
(27) Back Cover
(28) Back Cover
(29) Scale
(30) Color Palette
(2) Front Cover
(3) Page 1
(4) Page 2
(5) Page 3
(6) Page 4
(7) Page 5
(8) Page 6
(9) Page 7
(10) Page 8
(11) Page 9
(12) Page 10
(13) Page 11
(14) Page 12
(15) Page 13
(16) Page 14
(17) Page 15
(18) Page 16
(19) Page 17
(20) Page 18
(21) Page 19
(22) Page 20
(23) Page 21
(24) Page 22
(25) Page 23
(26) Page 24
(27) Back Cover
(28) Back Cover
(29) Scale
(30) Color Palette