(29) Page 27 (29) Page 27
9 að almenn fræðsla til eldri borgara verði aukin, s.s. um réttindi, heil- brigði og starfslok, 9 að komið verði í veg fyrir tvísköttun á greiðslum launafólks í lífeyris- sjóði. Fatlaðir Fötluðu fólki á að vera kleift að taka þátt í lífi og starfi eftir því sem hugur og geta stendur til. Vistun fatlaðra á stofnunum án þátttöku og snertingar við daglegt líf er stefna, sem runnið hefur skeið sitt á enda. Lögum um málefni fatlaðra hefur ekki verið framfylgt og síendurtekin skerðing á framkvæmdasjóði fatlaðra, svo nemur hundruðum milljóna, hefur leitt til þess að brýnustu þörfum hefur ekki verið sinnt. Auk þess hefur hinum skerta sjóði verið gert að sinna ýmsum þáttum menntunar fatlaðra, en það er ekki í samræmi við hlutverk hans. Menntun fatlaðra á að kosta á sama hátt og annarra þjóðfélags- þegna. Stórátak þarf að gera í menntunarmálum fatlaðra innan skólakerfisins þar sem þeim ber sami réttur og öðrum þegnum landsins. Fötluðum stendur fátt til boða hvað varðar framhaldsmenntun og sama máli gegnir um endurmenntun, fullorðinsmenntun og sérhæfða menntun. Fatlaðir búa við mikinn húsnæðisvanda og eru margir þeirra á biðlistum eftir húsnæði á vegum félagasamtaka og opinberra aðila. Vandi geðsjúkra er hvað til- finnanlegastur, enda eru þeir stór hluti þeirra sem eru á biðlistum. Einnig vantar úrræði í atvinnumálum og endurhæfingu fatlaðra sem og þjónustu við fötluð börn og foreldra þeirra. Huga þarf að stöðu fatlaðra kvenna, en kvenleg sérstaða gleym- ist oft þegar leitað er lausna á málefnum fatlaðra. Fötluðum er ætlað að lifa af bótum sem eru langt undir framfærslukostnaði, þótt fötlun fylgi oft mikill kostnaður. Ef litið er sérstaklega á þau útgjöld, sem varið er til þjónustu öryrkja, má sjá að íslendingar standa öðrum Norðurlandaþjóðum langt að baki í þeim efnum. Kvennalistinn vill: 9 vinna að því að breyta viðhorfum fólks til fatlaðra þannig að talið verði eðlilegt að þeir taki þátt í daglegu lífi samfélagsins, námi og störfum eins og hugur þeirra og geta stendur til, 9 að stjórnvöld framfylgi ákvæðum laga um fatlaða og tryggi að fé til framkvæmdasjóðs fatlaðra verði ekki skert né heldur það fé sem þeim ber úr erfðafjársjóði, 27
(1) Front Cover
(2) Front Cover
(3) Page 1
(4) Page 2
(5) Page 3
(6) Page 4
(7) Page 5
(8) Page 6
(9) Page 7
(10) Page 8
(11) Page 9
(12) Page 10
(13) Page 11
(14) Page 12
(15) Page 13
(16) Page 14
(17) Page 15
(18) Page 16
(19) Page 17
(20) Page 18
(21) Page 19
(22) Page 20
(23) Page 21
(24) Page 22
(25) Page 23
(26) Page 24
(27) Page 25
(28) Page 26
(29) Page 27
(30) Page 28
(31) Page 29
(32) Page 30
(33) Page 31
(34) Page 32
(35) Page 33
(36) Page 34
(37) Page 35
(38) Page 36
(39) Page 37
(40) Page 38
(41) Page 39
(42) Page 40
(43) Page 41
(44) Page 42
(45) Page 43
(46) Page 44
(47) Page 45
(48) Page 46
(49) Page 47
(50) Page 48
(51) Page 49
(52) Page 50
(53) Page 51
(54) Page 52
(55) Page 53
(56) Page 54
(57) Page 55
(58) Page 56
(59) Page 57
(60) Page 58
(61) Page 59
(62) Page 60
(63) Page 61
(64) Page 62
(65) Page 63
(66) Page 64
(67) Back Cover
(68) Back Cover
(69) Scale
(70) Color Palette


Framtíðarsýn

Year
1995
Language
Icelandic
Pages
68


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Framtíðarsýn
https://baekur.is/bok/6b3ac37a-b4b3-4d9c-a9ab-a1b755adba2e

Link to this page: (28) Page 26
https://baekur.is/bok/6b3ac37a-b4b3-4d9c-a9ab-a1b755adba2e/0/28

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.