loading/hleð
(13) Page 11 (13) Page 11
Um vinnandi konur er ekki orð í íslendingasögunum því húsbændurnir höfðu ekki hundsvit á búskapnum. Þeir kunnu ekkert annað en kúra í fleti krota á blað og troða í sig keti - og fljúgast á með mestu ósköpum. Já, karlmenn^í þessu karlmannalandi, þið eruð króniskur þjóðarvandi, þumbist og sperrist við - og þykist á við kvenfólkið. - Viðlag - Lag: Gunnar Edander Texti: Dagný og Kristján. FRAMTÍÐARDRAUMAR Ef ég tilskildum námsþroska næ og ég nafnbætur hjúkkunnar fæ munu langþjáðir sjá mig og langa að fá jafnvel lasnir mig þrá -tra-la-la. Allur spítalinn mænir á mig sérhver maður fær óró í sig, ef ég svíf honum frá eða sest honum hjá jafnvel sjúkir mig þrá -tra-la-la. Þegar læknirinn leitar á mig kemst mín löngun á hættulegt stig en mitt dyggðuga já fær minn draumaprins þá jafnvel dauðir mig þrá tra-la-la. Kannski fer ég þó fljótar í verð ef éfj flugfreyja girnileg verð, og þa slepp ég við sár, og þá slepp ég^við pár eða slys eða fár -tra-la-la. Ofar skýjum ég skín þá sem sól fyrir skyldustörf mín fæ ég hól fyrir litfagurt skinn fyrir limaburð minn fyrir lítilþægt sinn -tra-la-la. Kannski hallar þá höfði að mér einhver haldgóður stórmiljóner upp um víðloftin blá þotuvængjunum á get ég valið um þá -tra-la-la.


Syngjandi sokkar

Year
1978
Language
Icelandic
Keyword
Pages
52


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Syngjandi sokkar
http://baekur.is/bok/724abb58-ba99-49db-89c4-a416b8765956

Link to this page: (13) Page 11
http://baekur.is/bok/724abb58-ba99-49db-89c4-a416b8765956/0/13

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.